Náttfata- og hattaball

Fimmtudaginn 21.janúar héldu 10.bekkingar ball fyrir yngri nemendur skólans. Mjög góð mæting var á náttfataball 1. – 4. bekkjar og mikil og góð stemning myndaðist á gólfinu. Heldur færri mættu á Hattaball miðstigsins en allir skemmtu sér vel og þökkum við öllum fyrir frábært ball.

Takk fyrir komuna,
10. bekkingar Giljaskóla