Eruð þið ekki með?

Kæru foreldrar!

Litbrigði læsis bréf til foreldra 1. september 2015

Með þessu bréfi biðla ég til ykkar allra um að vera með í lestrarátaki skólanna á Akureyri. Við ætlum okkur að ná frábærum árangri með börnin okkar. Við viljum festa í sessi þá hugsun að það er á ábyrgð okkar allra að börnin okkar verði læs. Að þau séu hvött, studd og hafi góðar fyrirmyndir. Þetta er grundvallaratriði.

Í Reykjanesbæ náðist á örfáum árum frábær árangur í samræmdum prófum með sameiginlegu átaki í læsi. Þar var lyft grettistaki þar sem allir hjálpuðust að og öxluðu ábyrgð. Þetta viljum við gera á Akureyri. Við ætlum að ná árangri. Við þurfum ykkur kæru foreldrar með í liðið.

Bestu kveðjur,

Soffía Vagnsdóttir

fræðslustjóri Akureyrarbæjar