Árshátíðir nemenda

Nú stendur árshátíð Giljaskóla fyrir dyrum. Árshátíðir nemenda verða haldnar í íþróttasal skólans þriðjudaginn 19. mars, miðvikudaginn 20. mars og fimmtudaginn 21. mars kl. 17:00.

Aðgangseyrir er 500 krónur fyrir fullorðna og gesti (miðinn gildir á allar sýningar). Nemendur í Giljaskóla og yngri börn borga ekki aðgangseyri. Selt er inn við innganginn í íþróttahúsinu. Það verða posar á staðnum. Aðgangseyririnn skiptist á milli sérdeildar og 1. - 9. bekkja og er nýttur til vorfagnaða.

Foreldrasýningar í íþróttasal Giljaskóla verða sem hér segir;
Þriðjudag 19. mars kl. 17:00 sýning stuttmynda nemenda í 8. - 10. bekk; afrakstur stuttmyndadaga.
Miðvikudag 20. mars kl. 17:00 sýna: Sérdeild, 3. bekkur, 5. og 7. bekkur.
Fimmtudag 21. mars kl. 17:00 sýna: Sérdeild, 1. bekkur, 2. bekkur, 4. og 6. bekkur.
Sýningar nemenda munu taka um það bil eina klukkustund. Sjoppa verður opin í íþróttasalnum á stuttmyndasýningunni þriðjudaginn 19. mars en að loknum sýningum 20. og 21. mars verður kaffisala á vegum 10. bekkjar í sal skólans til styrktar ferðasjóði bekkjarins. Kaffi og meðlæti kostar 1500 krónur fyrir fullorðna og nemendur í 8. - 10. bekk, 500 krónur fyrir nemendur í 1. - 7. bekk og yngri börn fá frítt.

Árshátíðarball fyrir nemendur í 7. - 10. bekk verður miðvikudagskvöldið 24 . apríl (síðasta vetrardag). Nánar auglýst síðar.

Við vonum að allir sjái sér fært að mæta og eiga góða stund í skólanum með börnum sínum.

Kær kveðja og góða skemmtun, starfsfólk Giljaskóla