Giljaskóli, skóli á grćnni grein
Flýtilyklar
Endurmenntun
Endur- og símenntun starfsmanna
Símenntunaráætlunum má skipta í tvennt. Annars vegar er símenntunaráætlun skóla og hins vegar eru
símenntunaráætlanir einstakra starfsmanna. Í áætlunum starfsmanna er ekki eingöngu miðað við þarfir skólans heldur einnig
persónulegar þarfir og áhugamál.
Markmið símenntunaráætlunar Giljaskóla
Símenntunaráætlun er liður í því að ná settum markmiðum Giljaskóla.Símenntunaráætlun er gerð með hliðsjón af veikleikum, styrkleikum og áherslum skólans.Í símenntunaráætlun er gerð grein fyrir fjármögnun, skipulagi og reglum.Í símenntunaráætlun skólans er byggt á starfsmanna-, umhverfis- og jafnréttistefnu Akureyrarbæjar, svo og á annarri stefnumótun sveitarfélagsins, sem varðar starfsmenn GiljaskólaMarkmið Giljaskóla
Skólinn hvetur starfsfólk til stöðugrar þekkingarleitar.Skólinn leitast við að bjóða upp á metnaðarfullt starfsumhverfi.Skólinn styður eftir bestu getu starfsþroska einstaklinga.Skólinn leggur metnað í að skipuleggja og bjóða upp á fjölbreytt tækifæri til símenntunar.Símenntunarform
Lögð er áhersla á að tengja saman fomlega og óformlega fræðslu. Símenntun í Giljaskóla felst m.a. í:- Námskeiðum og þjálfun á vegum ytri aðila.
- Viðurkenndum ráðstefnum, kynnisferðum og málþingum.
- Kennslu fyrir hópa starfsmanna eða annarra.
- Kynningum, t.d. á fundum eða hluta funda, sem eru fræðsla fyrir starfsmenn.
- Jafningjaráðgjöf, þar sem starfsmenn leiðsegja hverjir öðrum í starfi.
- Lestri fræðilegs efnis í leshringjum og samþykktum lestri fræðirita.
- Formlegu viðbótarnámi/framhaldsnámi.
Framboð símenntunar
Reynt er að nýta sem best þekkingu/sérfræði einstaklinga í starfsmannahópnum.Í tengslum við samstarf við aðra skóla eða stofnanir innanlands sem erlendis er markvisst sótt þekking. Þjónusta Skólaþróunarsviðs Háskólans á Akureyri er nýtt í samræmi við samning Akureyrarbæjar og HA. Auk þess er keypt fræðsla af KHÍ Háskólanum á Akureyri, Háskóla Íslands, Mentor, auk ýmissa sérfræðinga innan og utan skólakerfisins. Samstarf við Álftanesskóla v/kynningar á Uppeldisstefnunni.Leit
Á nćstunni
25.05.2012
28.05.2012
4.06.2012
5.06.2012