Starfsáætlun 2005-2006
Í vetur ætlum við að leggja áherslu á eftirfarandiForeldrasamstarf
- Nýjungar varðandi heimsóknir á heimili fyrstu bekkinga fyrir skólabyrjun.
- Fræðslufundir með foreldrum í 1,5,8, bekk í samstarfi við Ingibjörgu Auðunsdóttur
- Allir kennarar noti tíma til skráningar í Mentor varðandi ástundun og námsáætlanir
- Allir kennarar séu meðvitaðir um möguleika póstsendinga til foreldra í Mentor
- Gera heimasíðu virka varðandi upplýsingar um skólastarfið
- Auka ábyrgð foreldra á fjáröflun og félagsstarfi í 10. bekk
Stjórnun
- Gera viðmið um vinnutíma og áherslur í skólastarfi skv. nýjum kjarasamningum skýr og sýnileg milli kennara og stjórnenda.
- Gera verkefnalista varðandi aðra vinnu kennara
- Gera verklýsingar og ramma varðandi verkefni og viðburði í skólastarfinu
- Gera verkaskiptingu milli stjórnenda og deildarstjóra skýrari
- Skipta upp yngra stigi á stigsfundum og gera boðleiðir skýrari
- Gera deildafundi markvissari
- Koma upp gagnagrunni á samgögnum fyrir stjórnendur að vinna úr
- Vinna upp tímaás fyrir stjórnendur varðandi ýmis verkefni skólaársins
Skólareglur
- Endurskoða og einfalda skólareglur
- Skoða skólareglur með það í huga að gera þær jákvæðari og skýrari
- Einfalda viðurlög og gerð ástundunareinkunnar
Nemendur
- Vinna með sýn skólans og einkunnarorð
- Tengja einkunnarorð skólans afmælis og þemavinnu
- Þróa vinabekkjatengsl
- Þróa og útfæra útiskóla
- Auka fjölbreytni í kennsluháttum
- Vinna með nemendum að byggja upp jákvæða sjálfsmynd í tengslum við agabrot
- ( sbr. uppbyggingarstefnan)
- Halda hátíð vegna 10 ára afmælis skólans
- Bæta aðbúnað og hollustu í mötuneyti með áherslu á úrval ávaxta og grænmetis
Skólaþróun
- Afmarka og gera skýra verkefnaferla í ýmsu varðandi skólastarfið
- Hefja vinnu að stefnumótun í lestri/læsi fyrir allan skólann
- Þróa stefnu í umhverfismálum
- Vinna að samfelldri námskrá í listum,ensku,dönsku
- Hefja vinnu við stefnumótun í upplýsingatækni
- Kynnast markmiðum Uppbyggingarstefnunnar ( restitution) og tengja hana sýn og einkunnarorðum skólans
- Vinna með sýn skólans og annað tengt lífsleikni
- Vinna að gerð gátlista og ferla tengda ýmsum viðburðum skólaársins
- Auka safnkennslu að lokinni skráningu skólasafns í nýtt landskerfi gegnir.is
Starfsmenn
- Starfmannasamtöl verði 1 til 2 á ári. Annað verði í tengslum við kjarasamning, hitt tengt sjálfsmati
- Endurskoða starfslýsingar annarra starfsmanna en kennara
- Auka færni og gera átak í skráningu starfsmanna í Mentor
- Allir starfsmenn fái netföng
- Skapa starfsmönnum skilyrði til endurmenntunar
Sjálfsmat
- Koma á fót sjálfsmatsnefnd
- Vinna verkáætlun og tímaás varðandi sjálfsmat og sjálfsmatsaðferðir
- Vinna skýrslu um sjálfsmat



