Umsókn um skólavist fyrir nemendur með lögheimili á Akureyri
Umsókn um námsvist utan lögheimilissveitafélags
Reglur um greiðslur fyrir nemendur sem stunda nám utan lögheimilissveitarfélags
Móttaka nýrra nemenda
Að vori er verðandi 1. bekkjar nemendum úr leikskólum bæjarins boðið í kynnisferð um skólann. Fulltrúar frá Giljaskóla hitta einnig leikskólakennara til að fræðast um þá. Skólinn fær einnig skriflegar upplýsingar með nemendum í samráði við foreldra. Að auki er nemendum boðið í skólann ásamt foreldrum (gert í maí sama ár og skólaganga hefst). Foreldrum er kynnt skólastarfið og
Nokkur undanfarin ár hafa umsjónarkennarar fyrsta bekkjar heimsótt alla nemendur sína áður en þeir hefja skólagöngu. Eftir það hafa foreldrar og nemendur verið boðaðir í viðtal til verðandi umsjónarkennara og hjúkrunarfræðings. Foreldrar og kennarar hafa verið ánægðir með þessa nýbreytni sem er leið til þess að skapa grunn að jákvæðu og árangursríku skólastarfi.
Haldinn er fræðslufundur hjá foreldrum í fyrsta bekk að hausti þar sem fjallað er um samstarf heimilis og skóla og einnig byrjendalæsi. Fyrstu skóladagarnir eru jafnan í styttra lagi og nemendum kynnt ýmislegt sem fylgir því að verða grunnskólanemandi. Óskað er eftir að foreldrar meti sjálfir hversu lengi þeir fylgja barni sínu eftir í skólann þessa fyrstu daga.
Umsjónarkennari ræðir við forráðamenn annarra nýrra nemenda sem koma í skólann. Hann fylgist með líðan nemandans og aflar upplýsinga frá fyrri skóla og foreldrum m.a. um námsgengi og félags- og tilfinningaþroska.
Ef um er að ræða nemanda með skilgreinda fötlun er fundað að vori með starfsmönnum skólateymis og foreldrum viðkomandi nemanda til undirbúnings skólagöngu.
Bekkjarfélögum er gerð grein fyrir fötluninni í samráði við foreldra barnsins.



