Jafnréttisáætlun grunnskóla skólaárið 2005-2006
Jafnréttisáætlun þessi er gerð í samræmi við ákvæði laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 96/2000 og Jafnréttisstefnu Akureyrarbæjar 2004-2007.
Áætlunin nær annars vegar til jafnréttis kynjanna meðal starfsfólks og hins vegar meðal nemenda.
Starfsfólk
Laus störf
Meirihluti starfsfólks skólans er konur. Við nýráðningar verður leitast við að jafna kynjahlutfallið.
Hvernig: Gerð verði samantekt á kynjahlutfalli starfsfólks hvers skóla eftir starfsheitum.
Hver: Skóladeild.
Hvenær: Í október.
Hvernig: Í starfsauglýsingum verði vitnað til jafnréttisáætlunar skólans og jafnréttisstefnu Akureyrarbæjar.
Hver: Skóladeild.
Hvenær: Þegar við á.
Hvernig: Við ráðningar verði unnið í samræmi við verklagsreglur Akureyrarbæjar um ráðningar m.t.t. kynjasjónarmiða.
Hver: Skólastjórar.
Hvenær: Þegar við á.
Starfsþjálfun og endurmenntun
Konum og körlum sem vinna sambærileg störf í skólanum skal til jafns standa til boða starfsþjálfun og endurmenntun.
Hvernig: Við gerð símenntunaráætlana skal þess gætt að kynjunum sé ekki mismunað. Starfsfólki skal standa til boða fræðsla um jafnréttismál.
Hver: Stjórnendur skólans.
Hvenær: Í október/nóvember.
Laun
Nauðsynlegt er að fylgjast með launum starfsmanna út frá kynjasjónarmiði og vinna að því að jafna laun kynjanna komi launamunur í ljós.
Hvernig: Gerð verði úttekt þar sem skoðuð verða grunnlaun, yfirvinnugreiðslur o.s.frv. eftir kyni og starfsheitum.
Hver: Jafnréttisráðgjafi Akureyrarbæjar.
Hvenær: Í nóvember.
Samræming starfs og einkalífs
Mikilvægt er að starfsfólk hafi tækifæri til þess að sinna skyldum sínum í starfi jafnt sem einkalífi og að gott jafnvægi sé þar á milli. Reynt er að koma til móts við starfsmenn um sveigjanleika í störfum þar sem kostur er.
Hvernig: Óskir starfsfólks um sveigjanleika verði metnar eftir aðstæðum.
Hver: Skólastjórnendur.
Hvenær: Þegar við á.
Kynferðisleg áreitni og einelti
Gerðar hafa verið leiðbeiningar fyrir bæjarkerfið um viðbrögð við kynferðislegri áreitni og einelti á vinnustöðum. Allt starfsfólk skólans þarf að vera meðvitað um ábyrgð og færar leiðir ef upp koma tilvik sem varða kynferðislega áreitni eða einelti.
Hvernig: Leiðbeiningarnar verði kynntar öllu starfsfólki á starfsmannafundi en skulu auk þess vera aðgengilegar í starfsmannahandbók.
Hver: Stjórnendur skólans.
Hvenær: Í ágúst/september.
Nemendur
Fræðsla
Í jafnréttislögum er sérstaklega kveðið á um að veita skuli fræðslu um jafnréttismál m.a. með því að leggja áherslu á að búa bæði kynin jafnt undir virka þátttöku í samfélaginu, fjölskyldulífi og atvinnulífi.
Hvernig: Grunnskólinn starfar samkvæmt markmiðum aðalnámskrár. Markmið sem lúta að kennslu í jafnréttismálum eru tilgreind í mörgum greinum og skulu kennarar taka mið af því.
Gagnagrunnurinn www.menntagatt.is er aðgengilegur fyrir kennara og þar má finna námsefni og verkefni sem eiga að fylgja jafnréttismarkmiðum aðalnámskrár. Einnig gefst kennurum þar tækifæri til að leggja inn verkefni og þannig má byggja upp góðan hugmynda- og verkefnabanka.
Gerð verði grein fyrir jafnréttisfræðslu vetrarins í kennsluáætlunum og/eða kennsluskýrslum.
Hver: Kennarar.
Hvenær: Samkvæmt kennsluáætlunum og þegar við á.
Kennslu- og námsgögn
Kennslu- og námsgögn skulu vera þannig úr garði gerð að kynjum sé ekki mismunað.
Námsgagnastofnun hefur útbúið gátlista, þar sem m.a. er horft til kynjasjónarmiða, sem öllum höfundum og öðrum sem vinna fyrir stofnunina er gert að hafa að leiðarljósi.
Hvernig: Kennarar nýti sér það námsefni Námsgagnastofnunar sem samið hefur verið út frá fyrrtöldum leiðbeiningum (sé það fyrir hendi) en gæti þess að auki að nota ekki gagnrýnislaust námsefni sem sýnir staðlaðar kynjaímyndir eða mismunar kynjunum að einhverju leyti.
Hver: Kennarar.
Hvenær: Þegar við á.
Náms- og starfsfræðsla
Mikilvægt er að kynna bæði stúlkum og piltum möguleika á framhaldsmenntun og störfum sem litið hefur verið á sem hefðbundin kvenna- eða karlastörf en jafnframt hvetja nemendur til að prófa það sem hentar hverjum og einum burtséð frá kyni.
Hvernig: Hér eru nefndar nokkrar leiðir sem mögulegar eru:
• Atvinnukynningar í skólunum – Fólk af vinnumarkaðnum fengið til að halda stutta fyrirlestra og svara fyrirspurnum. Leitast verði við að fá fólk sem hefur valið sér óhefðbundnar leiðir m.t.t. kyns í námi og starfi.
• Atvinnulífskynningar – Nemendur fái tækifæri til að kynna sér atvinnulífið á eigin skinni. Hvatt verði til þess að nemendur prófi það sem hentar hverjum og einum burtséð frá kyni.
• Áhugasviðsgreining – Slík greining standi til boða áður en samræmd próf eru valin.
• Fyrirlestur – Fulltrúar frá Jafnréttisstofu fengnir til að kynna jafnréttislög, starfsemi stofunnar og jafnrétti með tilliti til launa og í almennum skilningi.
Hver: Námsráðgjafi.
Hvenær: Dreifist á skólaárið, tengist skóladagatali og starfsáætlunum.
Samskipti við foreldra/forráðamenn
Starfsfólk skólans þarf að vera meðvitað í samskiptum við foreldra/forráðamenn og gæta þess að útiloka ekki annað foreldri/forráðamann á grundvelli kyns. Mikilvægt er að litið sé á feður og mæður sem jafngild í foreldrasamstarfinu.
Hvernig: Þegar haft er samband við foreldra/forráðamenn sé þess gætt að hafa ekki aðeins samskipti við móður.
Hver: Skólastjórnendur og kennarar.
Hvenær: Þegar við á.
Kynferðisleg áreitni
Skólastjórnendur skulu skv. lögum gera sérstakar ráðstafanir til að koma í veg fyrir að nemendur verði fyrir kynferðislegri áreitni í skólanum hvort heldur sem er af hálfu annarra nemenda eða starfsfólks.
Hvernig: Fræðsla um kynþroska, kynlíf og siðferði í samskiptum kynjanna verði samkvæmt markmiðum aðalnámskrár og skólanámskrá.

Þess skal gætt í öllum starfsháttum skólans og daglegri umgengni við nemendur að þeim sé ekki mismunað á grundvelli kynferðis. Leitast skal við að mæta þörfum beggja kynja í skólastarfinu.
Telji starfsmaður/nemandi á sér brotið samkvæmt áætlun þessari og lausn finnst ekki innan skólans getur viðkomandi leitað til jafnréttisráðgjafa Akureyrarbæjar.
Endurskoðun:
Endurskoða skal jafnréttisáætlun þessa vorið 2006.