Giljaskóli

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Endurmenntun

Endur- og símenntun starfsmanna


Símenntunaráætlunum má skipta í tvennt. Annars vegar er símenntunaráætlun skóla og hins vegar eru símenntunaráætlanir einstakra starfsmanna. Í áætlunum starfsmanna er ekki eingöngu miðað við þarfir skólans heldur einnig persónulegar þarfir og áhugamál.

 

Markmið símenntunaráætlunar Giljaskóla

Símenntunaráætlun er liður í því að ná settum markmiðum Giljaskóla.Símenntunaráætlun er gerð með hliðsjón af veikleikum, styrkleikum og áherslum skólans.Í símenntunaráætlun er gerð grein fyrir fjármögnun, skipulagi og reglum.Í símenntunaráætlun skólans er byggt á starfsmanna-, umhverfis- og jafnréttistefnu Akureyrarbæjar, svo og á annarri stefnumótun sveitarfélagsins, sem varðar starfsmenn Giljaskóla

Markmið Giljaskóla

Skólinn hvetur starfsfólk til stöðugrar þekkingarleitar.Skólinn leitast við að bjóða upp á metnaðarfullt starfsumhverfi.Skólinn styður eftir bestu getu starfsþroska einstaklinga.Skólinn leggur metnað í að skipuleggja og bjóða upp á fjölbreytt tækifæri til símenntunar.

Símenntunarform

Lögð er áhersla á að tengja saman fomlega og óformlega fræðslu. Símenntun í Giljaskóla felst m.a. í:
  • Námskeiðum og þjálfun á vegum ytri aðila.
  • Viðurkenndum ráðstefnum, kynnisferðum og  málþingum.
  • Kennslu fyrir hópa starfsmanna eða annarra.
  • Kynningum, t.d. á fundum eða hluta funda, sem eru fræðsla fyrir starfsmenn.
  • Jafningjaráðgjöf, þar sem starfsmenn leiðsegja hverjir öðrum í starfi.
  • Lestri fræðilegs efnis í leshringjum og samþykktum lestri fræðirita.
  • Formlegu viðbótarnámi/framhaldsnámi.

Framboð símenntunar

Reynt er að nýta sem best þekkingu/sérfræði einstaklinga í starfsmannahópnum.Í tengslum við samstarf við aðra skóla eða stofnanir innanlands sem erlendis er markvisst sótt þekking.  Þjónusta Skólaþróunarsviðs Háskólans á Akureyri er nýtt í samræmi við samning Akureyrarbæjar og HA. Auk þess er keypt fræðsla af KHÍ Háskólanum á Akureyri, Háskóla Íslands, Mentor, auk ýmissa sérfræðinga innan og utan skólakerfisins. Samstarf við Álftanesskóla v/kynningar á Uppeldisstefnunni.

Mynd augnabliksins

img_3920.jpg

Auglýsingar

Mentor
Matartorg
Upplýsingaskjárinn
Fíkniefnasíminn
Nám að loknum grunnskóla
Dimmuborgir
Grenndargral

Teljari

Í dag: 11
Samtals: 40973

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn