Áfallahjálp
Áfallateymi skólans er hluti aðgerðateymis.Skólastjóri, sálfræðingur skólans, kennari eða starfsmaður, hjúkrunarfræðingur skólans og námsráðgjafi. Með teyminu starfa hlutaðeigandi umsjónarkennari og deildarstjóri. Áfallateymi getur leitað aðstoðar hjá presti, lögreglu, skólalækni, djákna eða geðlækni.
Skilgreining á áföllum í skóla
Nemandi, starfsmaður, forráðamenn eða systkini nemanda geta orðið fyrir alvarlegu áfalli. Slík áföll geta verið af völdum dauðsfalla, slysa, alvarlegra og/eða langvarandi veikinda, líkamsárása, náttúruhamfara, skilnaðar foreldra, kynferðislegrar misnotkunar, eineltis og annarra þátta sem samkvæmt mati áfallateymis veldur áfalli hjá nemanda.
Starfshættir áfallateymis
Áfallateymi er ávallt til staðar og reiðubúið að veita hjálp þegar válegir atburðir snerta einhvern eða einhverja innan skólans, nemendur eða starfsfólk. Áfallateymi starfar í algjörum trúnaði við skjólstæðinga sína og lætur ekki neinar upplýsingar frá sér nema í fullu samráði við viðkomandi aðila.Hlutverk
- Að sjá um að nemendur skólans fái viðeigandi aðstoð ef þeir verða fyrir áfalli.
- Að vera til staðar og reiðubúið að veita hjálp þegar einhver af kennurum eða öðru starfsfólki verður fyrir áfalli.
- Að vera reiðubúið til að starfa allt árið, jafnt sumar sem í skólafríum yfir veturinn og á skólatíma.
- Að bera aðgerðir skólans undir viðkomandi foreldra/starfsmann til samþykkis og hafa þá með í ráðum frá upphafi.
- Að hlúa að nemendum og starfsfólki skólans m.a. með því að gefa gaum að áfallastreitu og bjóða þess vegna upp á hópavinnu eða einstaklingsviðtöl ef þörf er á.
Fyrstu viðbrögð vegna áfalls
Upplýsingar um áföll berist til skólastjóra eða staðgengils hans. Skólastjóri fái staðfestingu á áfalli hjá viðkomandi eða aðstandendum. Skólastjóri leitar leyfis hjá viðkomandi eða aðstandendum hans um að fjallað verði um málið í skólanum. Skólastjóri kallar áfallateymi saman, hugsanlega í samráði við aðstoðarfólk, ákveður fyrstu aðgerðir skólans og heldur fundi á næstu dögum svo oft sem þurfa þykir.Aðgerðir
- Ákveða verkaskiptingu
- Sjá um að almenn tilkynning berist til starfsfólks þegar það á við og fara yfir það hvernig skólinn hyggst taka á málum.
- Segja nemendum skólans frá atburðinum þegar það á við.
- Boða starfsfólk skólans til fundar í lok skóladags þar sem könnuð er líðan starfsfólks, ræða um börnin sem eru sérstaklega viðkvæm gagnvart því sem gerst hefur og um aðgerðir skólans næstu daga.
- Athuga hvort málið snertir nemendur í fleiri en einum bekk.
- Hringja í aðstoðarfólk ef með þarf.
- Að vinna með nemanda og/eða bekk eins lengi og þörf er á.
- Að ákveða hver sinnir eftirfylgd.
- Undirbúa endurkomu nemanda í skólann eftir missi eða áfall.
- Að hlúa að nemendum og gefa þeim kost á að vinna með tilfinningar sínar í leik og starfi.
- Ræða atburðinn í bekkjum eða minni hópum.
- Að bjóða upp á einstaklingsviðtöl.
- Að gæta þess að álagið verði ekki of mikið á starfsfólk skólans.



