Giljaskóli

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Sérdeild

Hlutverk

Sérdeild Giljaskóla starfar samkvæmt lögum um grunnskóla nr.66/1995 og sérkennslureglugerð nr.389/1996. Hlutverk deildarinnar er að sinna:

  •  kennslu og þjálfun barna með alvarlega greindarfötlun og aðrar viðbótafatlanir
  • ráðgjöf til kennara, foreldra og annarra sem tengjast þessum hópi nemenda.

Samkvæmt grunnskólalögum skulu öll börn sækja skóla í heimabyggð sinni með þeirri undantekningu að foreldrar og fagfólk telji fötlun nemandans koma í veg fyrir að almennur skóli geti veitt honum viðunandi kennslu og þjónustu. Forráðamenn geta þá sótt um skólavist í sérdeild. Endanleg ákvörðun um skólavist er tekin í samráði þessara aðila og heimaskóla barnsins eftir að sérfræðimat á stöðu mála hefur átt sér stað hjá ráðgjafaþjónustu ríkis eða sveitarfélags.

Kennsla

Nemendum er kennt í samræmi við metnar námsþarfir hvers og eins og eru þær skilgreindar í einstaklingsnámskrá viðkomandi. Námstilboð skulu vera fjölbreytt og kennsluaðstæður skipulagðar, m.a. unnið samkvæmt TEACCH kerfi. Námið fer fram eftir þremur samþættum leiðum.

  • Þroskamiðað nám: Áhersla lögð á að efla þroska á sviði skynjunar, hreyfinga, boðskipta, hugsunar, félags- og tilfinningalegs þroska.
  • Færnimiðað nám: Áhersla lögð á að auka færni nemenda til þess að takast á við daglegt líf s.s. sjálfshjálp, einföld störf og tómstundir.
  • Reynslumiðað nám: Áhersla lögð á að byggja upp reynsluheim nemenda þannig að þeir geti gert sér skýrari mynd af umhverfinu sem þeir lifa í og upplifað  það á innihaldsríkan hátt.

Námsgreinar

  • Boðskipti
  • Skynnám
  • Leikur
  • Hugsun / hugtakaskilningur / stærðfræði
  • Samfélagsfræði / félagsfærni
  • Sjálfshjálp
  • Hreyfifærni
  • Heimilisfræði
  • Tónmennt
  • Myndmennt
  • Handmennt
  • Tómstundir
  • Starfsnám

Sérdeildin er megin vettvangur kennslunnar en nemendur nýta sérgreinastofur í samræmi við þarfir og fara í vettvangsferðir. Allir nemendur deildarinnar eiga sér tengslabekk þar sem áhersla er lögð á félagslega blöndun.

Námsmat

Framvinda námsins er metin jafnt og þétt og formlega á annaskiptum. Eftirtöldum leiðum er beitt:

  • Stöðluð matsgögn
  • Sértækir matslistar í samræmi við sett námsmarkmið
  • Myndbandsupptökur
  • Viðtöl

Ráðgjöf

Markmið með sérkennslufræðilegri ráðgjöf deildarinnar er að stuðla að þróun starfshátta þannig að betur megi koma á móts við þarfir nemenda með mikla greindarfötlun í almennu skólakerfi. Ráðgjöf deildarinnar til eftirtalinna þátta:

  • Mat á námsstöðu
  • Aðstoð við gerð námsáætlana
  • Aðstoð við val á kennsluaðferðum
  • Aðlögun námsefnis
  • Aðstoð við val á kennslugögnum og tækjum
  • Fræðslu

Beiðni um ráðgjöf er send Fjölskyldudeild Akureyrar, skólateymi, á til þess gerðum eyðublöðum. Í beiðni skal vandinn skilgreindur ítarlega. Skólastjóri metur hvernig beiðni skuli sinnt í samráði við starfsmenn sérdeildar og felur viðkomandi fagmanni málið. Grundvöllur að árangursríkri ráðgjöf er að gott samstarf, gagnkvæm virðing og traust ríki á milli ráðgjafa og ráðþega. Samningur er gerður á milli viðkomandi í þeim tilgangi að skilgreina innihald, leiðir og framvindu verkefnisins. Í lok ráðgjafaferlis er tekin ákvörðun um eftirfylgd. Ráðgjöfin fer fram í heimaskóla á Akureyri og í sérdeildinni. Liggi fyrir skrifleg beiðni frá öðru sveitarfélagi um ráðgjöf í heimaskóla er ráðgjöfinni sinnt þar. Viðkomandi sveitarfélag stendur straum að kostnaði við ráðgjöfina.

Nýir nemendur

Nauðsynlegt er að skólanum séu kynntir nýir nemendur í sérdeild með a.m.k. árs fyrirvara þannig að hægt sé að hefja undirbúning og deildin verði vel í stakk búin til þess að sinna þörfum nýs nemanda. Undirbúningur felst m.a. í eftirfarandi:

  • Kynnast nemanda og foreldrum og kynna þeim skólastarfið
  • Fara í heimsóknir til að kynnast búnaði og aðstæðum
  • Undirbúa drög að námsáætlun
  • Undirbúa starfsfólk s.s. með námskeiðum
  • Gera innkaup á sértækum búnaði
  • Gera fjárhagsáætlun

Ferli umsókna og nýrra nemenda

  • Fjölskyldudeild Akureyrarbæjar fer með málefni barna með fatlanir og hefur ráðgefandi hlutverk gagnvart þeim og fjölskyldum þeirra
  •   Fjölskyldudeild skal kynna nýja nemendur fyrir starfsfólki sérdeildar og boða til fundar með forráðamönnum og fagfólki
  • Nemendakynning skal fara fram á vorönn, rúmu ári áður en nemandi innritast í skóla. Þá skal fara fram mat á þeim möguleikum sem skólakerfið hefur til boða fyrir viðkomandi nemanda.
  • Ákvörðun um skólagöngu skal liggja fyrir eigi síðar en ári áður en nemdandi hefur skólagöngu
  • Þegar ákvörðun hefur verið tekin um skólagöngu, sækja foreldrar formlega um skólavist

Skólstjóri tekur við málinu og hefur undirbúning skólabyrjunar ásamt tilgreindum sérfræðingum skólateymis Fjölskyldudeildar, foreldrum og öðrum sem málið kann að varða.

Samstarfsstofnanir

  • Akureyrarbær
  • Skólaskrifstofa Akureyrarbæjar
  • Fjölskyldudeild - Skólateymi
  • Búsetudeild - Skammtímavistun
  • Skólaþróunarsvið kennaradeildar Háskólans á Akureyri
  • Endurhæfingarstöðin Bjargi

Rekstur

Sérdeild Giljaskóla er rekin af Akureyrarbæ en getur jafnframt sinnt nemendum úr öðrum sveitafélögum á Norðurlandi í skemmri eða lengri tíma ef aðstaða er fyrir hendi. Akureyrarbær og viðkomandi sveitarfélag gera með sér samning um tilhögun skólagöngunnar og kostnað.

Námsvísir sérdeildar

Bæklingur um ráðgjöf


Mynd augnabliksins

skolahreysti_11.03.10-40.jpg

Auglýsingar

Mentor
Matartorg
Upplýsingaskjárinn
Fíkniefnasíminn
Nám að loknum grunnskóla
Dimmuborgir
Grenndargral

Teljari

Í dag: 11
Samtals: 40973

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn