Giljaskóli

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Saga Giljaskóla

Saga skólans 

1995 Giljaskóli hóf starfsemi í húsnæði leikskólans Kiðagils um haustið  með þrjár kennslustofur, lítið rými fyrir undirbúningsaðstöðu kennara og skrifstofu skólastjóra. Annað starfsmannarými var sameiginlegt með leikskólanum svo og skólalóð. 1996 Þegar á öðru ári var húsnæðið orðið of lítið og var þá bætt við lausri kennslustofu. 1997 Í upphafi var stefnt að því að fyrsti hluti byggingaráfanga nýs Giljaskóla yrði tilbúinn haustið 1997 en það gekk ekki eftir. Þá var fyrirséð að skólinn yrði áfram í Kiðagili með viðbótarhúsnæði í sal leiksólans, en auk þess fékkst lítill sumarbústaður sem nýttur var fyrir skrifstofu skólastjórnenda og sem sérkennslu­rými. 1998 Flutt inn í fyrri hluta fyrsta áfanga nýrrar skólabyggingar, þriggja hæða kennslustofuálmu. Um haustið var skólinn tilbúinn til notkunar seinni hluti fyrsta áfanga, stjórnunarrými og skólavistun. Þá var búið að taka í gagnið um 2.100 m2 en fullbyggður er skólinn um 4.500 m2 auk íþróttahúss. Það var rúmt um nemendur í nýrri skólabyggingu fyrstu tvö árin. 2000 Um haustið var skólahúsnæðið orðið of lítið og þá fengust til viðbótar þrjár lausar kennslustofur. 2001 - 2002 Kennt í hverjum kima og settar saman bekkjardeildir. Auk kennslunnar í húsnæði skólans fór fram íþróttakennsla í Oddeyrarskóla og í íþróttahúsi við Laugargötu. Smíðar voru kenndar í Oddeyrarskóla, sundkennsla í báðum laugum bæjarins og að auki var heimilisfræði fyrir elstu nemendur skólans kennd í Oddeyrarskóla. Haustið 2002 var skólinn loks fullbyggður, fyrir utan íþróttahús, og voru þá teknar í gagnið langþráðar sérgreinastofur. Giljaskóli er nú einsetinn skóli, kennsla hefst kl. 8:00 að morgni. Frístund (skólavistun) er starfrækt frá því að skóla lýkur til kl. 17:15 á daginn en allan daginn þá daga sem hefðbundið skólastarf fer ekki fram.  

Þróun nemenda- og starfsmannafjölda Giljaskóla

 Ár  Bekkjadeildir Nemendafjöldi  Ný stöðugilid og fjöldi starfsmanna
 1995-1996  1.-2.  44  Stafsmannafjöldi 8
 1996-1997  1.-3. og sérdeild  73  Stafsmannafjöldi 15
 1997-1998  1.-4. og sérdeild  113  Aðstoðarskólastjóri og starfsmannafjöldi 23
 1998-1999  1.-5. og sérdeild  158  Húsvörður í 100% starf og ritari í 75% starf.  Starfsmannafjöldi 40
 1999-2000  1.-6. og sérdeild  187  Starfsmannafjöldi 43
 2000-2001  1.-7. og sérdeild  223  Starfsmannafjöldi 44
 2001-2002  1.-8. og sérdeild  284  Starfsmannafjöldi 53
 2002-2003  1.-9. og sérdeild  339  2 deildarstjórar í 50% stöððu hvor, starf ritara í 100% safnkennari 75% námsráðgjafi 50%  Starfsmannafjöldi 61
 2003-2004  1.-10. og sérdeild  398  Starfsmannafjöldi 69; 2 deildarstjórar í 68 og 75% stöðu; ritari í 100%; safnkennari í 75%; námsráðgjafi 75%
 2004-2005  1.-10 og sérdeild  407  Starfsamannafjöldi 70; 2 deildarstjórar í 70% stöðu; ritari 100%; safnkennari 75%; námsráðgjafi 75%
 2005-2006   1.-10 og sérdeild  410

Starfsamannafjöldi 72; 2 deildarstjórar í 70% stöðu; ritari 100%; safnkennari 100%; námsráðgjafi 75%

 2006-2007   1.-10 og sérdeild  403 Starfsamannafjöldi 73; 2 deildarstjórar í 70% stöðu; ritari 100%; safnkennari 100%; námsráðgjafi 75%
 2007-2008  1.-10 og sérdeild

 383

Starfsamannafjöldi 73; 2 deildarstjórar í 75% stöðu; ritari 100%; safnkennari 100%; námsráðgjafi 75%

Mynd augnabliksins

arshatidgiljaskola_24.03.10-20.jpg

Auglýsingar

Mentor
Matartorg
Upplýsingaskjárinn
Fíkniefnasíminn
Nám að loknum grunnskóla
Dimmuborgir
Grenndargral

Teljari

Í dag: 11
Samtals: 40973

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn