Náms- og starfsráðgjöf
Við Giljaskóla starfar Erla S. Ingólfsdóttir náms- og starfsráðgjafi í 75% starfi.
Viðtalstími:
Mánudaga frá kl. 8:40 – 12:30
Þriðjudaga frá kl. 8:00 – 14:30
Miðvikudag frá kl. 8:00 – 12:00 og 12:30 – 16:00
Fimmtudaga frá kl. 10:00 – 12:00 og 12:30 – 14:00
Föstudaga frá kl. 8:40 – 12:00 og 12:30 – 15:00
Opinn tími er alla daga frá kl. 11:00-12:00.
Nemendur og foreldrar eru hvattir til að nýta sér þjónustu ráðgjafans. Hægt er að bóka viðtalstíma bæði með því að hringja (462-4820) eða senda tölvupóst. Einnig má senda fyrirspurnir og verður þeim svarað við fyrsta tækifæri.
Hlutverk námsráðgjafans er að:
- Standa vörð um velferð nemenda og starfa í þágu þeirra.
- Vera trúnaðarmaður og málsvari nemenda.
- Virða þagnarskyldu gagnvart nemendum varðandi þær upplýsingar sem þeim er trúað fyrir í starfi sínu. Námsráðgjafi getur aðeins rætt trúnaðarmál við aðra hafi nemandi samþykkt að aflétta trúnaði eða ef námsráðgjafinn metur það svo að líf og heilsa nemandans sé í húfi.
- Auðvelda einstaklingum að átta sig á eigin óskum og vilja og efla færni þeirra til að taka farsælar ákvarðanir um nám og starf.
Helstu verkefni ráðgjafans eru að:
- Veita ráðgjöf varðandi nám, námstækni og námsvenjur.
- Stuðla að auknum skilningi nemenda á eigin stöðu þannig að þeir meti raunsætt möguleika varðandi nám og og starf
- Aðstoða nemendur við að gera sér grein fyrir áhugasviðum og hvetur þá til sjálfsábyrgðar og stefnufestu.
- Safna og miðla upplýsingum um nám og störf.
- Undirbúa nemendur undir flutning milli skóla og/eða skólastiga.
- Veita nemendum ráðgjöf í einkamálum þannig að þeir eigi auðveldara með að ná settum markmiðum í námi.
- Hjálpa nemendum við að leita sér aðstoðar innan og utan skólans.
- Sinna forvarnarstarfi vegna vímuefna og annarra vágesta sem gætu raskað lífi nemendanna.
Ráðgjöf fyrir alla nemendur
Lögð er áhersla á að ráðgjöfin stendur öllum nemendum til boða og ekki þarf að vera fyrir hendi vandamál eða vanlíðan hjá nemendum til að þeir geti komið í viðtal. Ef nemendur langar til að ræða við einhvern um daginn og veginn eða vonir sínar og væntingar í lífinu þá er um að gera að panta tíma. Ráðgjafinn getur líka boðað nemendur til viðtals og ekki þarf að vera nein sérstök ástæða fyrir boðuninni.
Staðsetning
Ráðgjafinn er með skrifstofu á annarri hæð skólahússins við hliðina á skrifstofu hjúkrunarfræðings.



