Í skólahlaupinu þann 12. september 2007 söfnuðu nemendur og starfsfólk Giljaskóla nærri 80.000,- krónum. Ákveðið var að styrkja tvö börn sem lifa við bágar aðstæður í fjarlægum löndum. Nú hefur skólinn “eignast” tvö börn og vonandi getum við með framlagi okkar bætt aðstæður þessara barna. Þetta eru ein stelpa og einn strákur, á sitt hvorum aldri og eiga þau heima í sitt hvoru landinu.
Udaya Lakshmi Gajjelagunta er 12 ára gömul stelpa sem býr á Indlandi. Hún er fædd þann 18. febrúar árið 1995.
Hún er svo heppin að eiga bæði mömmu og pabba á lífi og einnig á hún einn bróður. Fjölskyldan hennar býr í kofa sem
er búinn til úr leir og bambus með stráþaki og moldargólfi. Þar er ekkert rafmagn og hvorki klósett né rennandi vatn. Kofinn er aðeins
eitt herbergi og þar sofa allir á gólfinu án ábreiðu og flugnanets. Matinn þurfa þau að elda úti og þau þurfa að ganga tvo
kílómetra til að ná í vatn. Udaya fékk oft malaríu, fékk lítið að borða og gekk af og til í skóla.
Núna býr Udaya á Heimili litlu ljósanna sökum þess hve fátækir foreldrar hennar eru. Henni líður mun betur, er frískari,
fær mat á hverjum degi og gengur í skóla.
Með framlagi okkar borgum við fyrir menntun og framfærslu á Heimili litlu ljósanna sem staðsett er í Gannavaram á suð-austurströnd Indlands.
Hér getið þið séð myndir og annað frá Heimili litlu ljósanna þar sem Udaya býr.
Vincent Obita er 7 ára gamall strákur sem býr í Úganda. Hann er fæddur þann 3. júlí árið 2000. Hann
býr hjá foreldrum sínum, tveimur bræðrum og einni systur. Hann er yngstur systkinanna og fjölskyldan er mjög fátæk. Þó hann hafi
liðið skort er hann heilsuhraustur en í Úganda eru sjúkdómar eins og eyðni, kólera, berklar og ýmsir magasjúkdómar mjög
algengir. Fjölskyldan býr í litlum leirkofa með stráþaki og fær mat frá Sameinuðu Þjóðunum á hverjum degi, aðallega
maís og baunir. Þau þurfa að sækja vatn í borholu og getur það tekið allt að 4-5 tíma.
Með framlagi okkar borgum við fyrir skólagöngu hans, læknishjálp og eina máltíð á dag.
Hér getið þið séð myndir og annað frá Rackoko - Pader héraði þar sem Vincent býr.
Við í Giljaskóla höfum hug á því að gera skólahlaupið að árlegu áheitahlaupi til þess m.a. að halda áfram að styrkja börnin okkar og gera jafnvel eitthvað meira. Það er trú okkar að með þessu séum við að sá fræum til nemenda Giljaskóla um að við þurfum að hugsa um minnstu bræður okkar í fjarlægum löndum. Þau koma okkur við og við getum haft áhrif þó við búum á hinu kalda Íslandi. Margt smátt gerir eitt stórt.





