Giljaskóli

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Bókasafn


Bókasafn Giljaskóla

Bókasafn skólans er á 2. hæð í fallegu 120 fermetra rými. Áætlaður safnkostur er á sjöunda þúsund bækur, skáld- og fræðirit, til útlána fyrir nemendur og kennara. Auk þess eru þar hljóðbækur, myndbönd, tímarit, hljómdiskar og spil. Lánstími er 2 vikur nema um annað sé samið. Safnið er opið nemendum frá 8-14.30 (nema þegar þar er kennsla) og fastur útlánatími í vetur verður milli 8 og 9:20.

 

Safnkennsla

Safnkennsla er skipulögð fyrir alla nemendur skólans nema 10. bekk sem hefur undanfarin ár fengið þar aðstoð við heimildaöflun vegna ritgerðasmíða. Helmingur nemenda fær safnkennslu fyrri hluta vetrar og hinn helmingurinn seinni hlutann. Á safninu er vinnuaðstaða fyrir 12-14 nemendur. Að öðru leyti er safnið opið fyrir margvíslega starfsemi; nemendur geta leitað heimilda, stundað nám og þeir eldri lesið eða spilað sér til afþreyingar í frítíma. Fjórar nemendatölvur eru á safninu ætlaðar til að nota við nám.

 

Upplestur

Á aðventunni fer að venju fram lestur úr nýjum barna- og unglingabókum fyrir alla nemendur. skólans

 

Gegnir.is

Safnið er tengt landskerfi bókasafna. Upplýsingar um gögn safnsins eru nú aðgengilegar á netinu http://www.gegnir.is/ og geta börn og foreldrar því skoðað hvað er til úr sinni heimatölvu. Útlánaþáttur kerfisins hefur nú gjörbreytt allri aðstöðu til kennslu og útlána.

 

Umsjón með safninu hefur Ingunn V. Sigmarsdóttir.

Mynd augnabliksins

img_5097.jpg

Auglýsingar

Mentor
Matartorg
Upplýsingaskjárinn
Fíkniefnasíminn
Nám að loknum grunnskóla
Dimmuborgir
Grenndargral

Teljari

Í dag: 10
Samtals: 40781

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn