Eyðublöð vegna valgreina:
Ósk um að þátttaka í félagsstarfi eða nám í sérskóla komi í stað valgreinar skólaárið 2010-2011
Umsókn um breytingu á valfögum
9. og 10. bekkur
Hver nemandi þarf að skila 37 kennslustundum á viku. Í kjarna eru 27 kennslustundir svo að valgreinar þurfa að vera samtals 10 kennslustundir á
viku. Hver valgrein samsvarar 2 kst á viku yfir veturinn þannig að hver og einn nemandi þarf að velja 5 greinar. (Undantekning frá þessu eru
framhaldsskólaáfangar í fjarkennslu en þar samsvarar hver eining 2 kst hálfan veturinn, 2 eininga áfangar samsvara einni valgrein). Lestu
kennslulýsingarnar vandlega og athugaðu dag- og tímasetningar sérstaklega vel.
Veldu fimm greinar og númeraðu frá 1-5 og þrjár til vara og númeraðu frá 6-8. Ef ekki er næg þátttaka í
valgrein fellur hún niður. Ef þú óskar eftir að fá þátttöku í íþróttum, félagsstarfi eða
sérskólum metna sem valgrein (2-4 vikustundir) þá skaltu tilgreina það í í kassanum metið val.
Vandaðu valið í samráði við foreldra/forráðamenn þína. Fáðu aðstoð hjá umsjónarkennara,
námsráðgjafa og/eða deildarstjóra ef þú þarft. Athugið að valið er fyrir báðar annir. Valið er bindandi.
Valblað og lýsingar fyrir verðandi 9. og 10. bekk
8. bekkur
Hver nemandi þarf að skila 37 kennslustundum á viku. Í kjarna eru 29 kennslustundir svo að valgreinar þurfa að vera samtals 8 kennslustundir á
viku. Valgreinarnar í 8. bekk skiptast í tvennt: bekkjarval og unglingastigsval. Bekkjarvalið er eingöngu fyrir 8. árganginn og þurfa nemendur að vera í
4 kest á viku í bekkjarvali. Unglingastigsvalið eru sameiginlegar valgreinar ætlaðar nemendum í 8.-10. bekk Giljaskóla. Nemendur í 8. bekk þurfa
að vera í tveimur unglingastigsvalgreinum. Ef ekki er næg þátttaka í valgrein fellur hún niður.
Nemendur eiga kost á að fá félagsstarf eða nám utan skólans metið í stað unglingastigsvalgreina(r) en til að hægt sé
að meta það sem eina valgrein þarf 1 - 4 klukkustunda iðkun á viku að liggja að baki og fleiri en 5 klukkustundir ef meta á það sem tvær
valgreinar. Skila þarf staðfestingu þjálfara/ kennara/ foringja á ástundun með eyðublaði sem skólinn leggur til (að hausti). Nemendur
og foreldrar þurfa að bera fulla ábyrgð á þessum skilum til að starfið fáist metið. Athugið að starfsemi utan skóla má
að hámarki meta sem 4 vikustundir af þeim 37 sem nemandi skal skila í grunnskóla og að foreldrar bera allan kostnað af námi sem óskað er eftir
með þessum hætti.
Mikilvægt er að nemendur vandi valið og afar mikilvægt er að foreldrar hafi hönd í bagga með vali barna sinna. Nemendur geta ráðfært sig
umsjónarkennara, Erlu námsráðgjafa eða Völu, deildarstjóra eldra stigs. Athugið að valið er fyrir báðar annir og að valið
er bindandi.
Valblað og lýsingar fyrir verðandi 8. bekk



