Stefnuyfirlýsing Giljaskóla um eineltismál
Starfsfólk Giljaskóla lýsir því yfir að hvorki einelti né annað ofbeldi er liðið í skólanum. Leitað er allra ráða til að fyrirbyggja einelti og áhersla lögð á að leysa þau mál sem upp koma á farsælan hátt. Giljaskóli á að vera öruggur vinnustaður þar sem starfið mótast af umhyggju, ábyrgð og lífsgleði. Stefnt að því að nemendur læri að setja sig í spor annarra, sýna umburðarlyndi og bera virðingu fyrir öðrum. Sjálfsöruggt barn er síður líklegt til að vera lagt í einelti og er betur í stakk búið til að takast á við stríðni og einelti.
Hvað er einelti?
Einelti er endurtekið ofbeldi, líkamlegt eða andlegt, þar sem einn eða fleiri níðast á einum, sem á erfitt með að verjast. Einelti getur birst í ýmsum myndum þótt algengast sé að flokka það í tvo flokka, andlegt og líkamlegt.
Einelti getur verið:
- Líkamlegt: barsmíðar, spörk, hrindingar eða skemmdarverk
- Munnlegt: uppnefni, niðrandi athugasemdir og endurtekin stríðni
- Skriflegt: tölvuskeyti, sms–skilaboð, bloggsíðuskrif, krot og bréfasendingar
- Óbeint: baktal, útskúfun eða útilokun úr félagahópi
- Efnislegt: eigum barnsins stolið eða þær eyðilagðar
- Andlegt: þegar barnið er þvingað til að gera eitthvað sem stríðir algjörlega gegn réttlætiskennd þess og sjálfsvirðingu.
Einelti er ofbeldi sem getur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér bæði fyrir þolanda og geranda. Andlegt ofbeldi, eða áreiti, hefur oft verri afleiðingar í för með sér en líkamlegt. Einelti hefur iðulega alvarleg áhrif á nám, líðan og félagsþroska einstaklinga.
Aðgerðateymi
Aðgerðateymi hefur umsjón með og sinnir faglegri forystu í eineltismálum innan skólans og veitir kennurum, nemendum og foreldrum leiðsögn.
Í aðgerðateymi eru:
- Skólastjóri
- Aðstoðarskólastjóri
- Deildarstjóri
- Námsráðgjafi
- Skólahjúkrunarfræðingur
Með aðgerðateymi starfa þeir kennarar sem hvert mál snertir.
Eineltisáætlun Giljaskóla



