Hlutverk heilsugæslu í skólum er að sinna heilsuvernd nemenda og hún er framhald ung- og smábarnaverndar. Starfsemi skólaheilsugæslu er skv.
lögum, reglugerðum og tilmælum er um hana gilda. Hún er meðal annars fólgin reglubundum skimunum og eftirliti, ónæmisaðgerðum,
heilbrigðisfræðslu og teymisvinnu kringum einstaka mál.
Hver skóli hefur skólahjúkrunarfræðing og skólalækni jafnframt því sem hvert barn hefur sinn heimilislækni. Heilsugæslu í
grunnskólum Akureyrar er sinnt af hjúkrunarfræðingum og læknum frá Heilsugæslustöðinni á
Akureyri.
Hjúkrunarfræðingur Giljaskóla er Drífa Þorgrímsdóttir og
skólalæknir er Þórir V. Þórisson.
Markmiðið með heilsugæslu í skólum er að stuðla að því að börn fái að þroskast við þau bestu andlegu,
líkamlegu skilyrði sem völ er á. Til þess að vinna að markmiði þessu er fylgst með börnunum svo að frávik finnist og viðeigandi
ráðstafanir verði gerðar sem fyrst. Áherslan er lögð á að fyrst og fremst beri foreldrar ábyrgð á heilsu og þroska barna sinna,
en starfslið heilugæslu í skólum fræði, hvetji og styðji foreldra í hlutverki sínu. Á heimasíðu Miðstöðvar
heilsuverndar barna http://www.heilsugaeslan.is/?PageID=24má finna nánari upplýsingar um heilsugæslu í
skólum og ráðleggingar til foreldra um heilbrigðistengd málefni.
Áherslan á haustönn 2009 verður á heilsuverndarþáttinn, erfiðustu tilfellin varðandi langveik börn og þverfaglega vinnu. Viðvera
skólahjúkrunafræðinga í skólunum minnkar vegna fjárhagsaðstæðna og nauðsynlegt er að hætta með opna tímann sem
verið hefur. Það þýðir að nemendur geta ekki lengur leitað til skólahjúkrunafræðings í viðtalstímunum sem verið
hafa. Þessi breyting er forsenda þess að unnt sé að sinna áhersluþáttunum.
Skipulögð heilbrigðisfræðsla og hvatning til heilbrigðra lífshátta verður unnin eftir því sem unnt er. Byggt er á
hugmyndafræðinni um 6-H heilsunnar sem er samstarfsverkefni skólaheilsugæslunnar og Lýðheilsustöðvar. Eftir fræðslu fær barnið
fréttabréf með sér heim. Þá gefst foreldrum kostur á að ræða við börnin um það sem þau lærðu og hvernig
þau geti nýtt sér það í daglegu lífi.
Slys og óhöpp á skólatíma
Það er ekki hlutverk skólahjúkrunarfræðings að vera með slysamóttöku í skólanum. Skólahjúkrunarfræðingur
veitir fyrstu hjálp þegar alvarlegri slys verða í skólanum og er starfsfólki skólans til stuðnings og ráðgjafar þegar upp koma
veikindi og slys hjá nemendum, á þeim tíma sem hjúkrunarfræðingur er við störf.
Ef smáslys eða óhapp verður á skólatíma sér starfsfólk skólans um fyrstu hjálp.
Þurfi nemandi að fara á heilsugæslustöð eða slysadeild skulu foreldrar/forrráðamenn fara með barninu. Því er mikilvægt að
skólinn hafi öll símanúmer þar sem hægt er að ná í foreldra á skólatíma barnsins.
Ekki er ætlast til að óhöppum sem gerast utan skólatíma sé sinnt af skólaheilsugæslunni. Foreldrum er bent á
að snúa sér til heimilslæknis og Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri með heilsufarsmál sem ekki teljast til
skólaheilsugæslu.
Foreldrar/forráðamenn bera ábyrgð á líðan og heilbrigði barna sinna. Góð samvinna og gott upplýsingaflæði er
mikilvægt til að starfsfólk skólaheilsugæslu geti sinnt starfi sínu sem best. Því eru foreldrar hvattir til að hafa samband við
hjúkrunarfræðing skólans ef einhverjar breytingar verða hjá barninu sem gætu haft áhrif á andlegt, líkamlegt eða félagslegt
heilbrigði þess. Að sjálfsögðu er fyllsta trúnaðar gætt um mál einstakra nemenda.
Vilji foreldrar/forráðamenn fá upplýsingar um einstök atriði, hvað varðar heilsugæsluna er þeim velkomið að hafa samband við
hjúkrunarfræðinginn.
Ef foreldrar/forráðamenn vilja ekki að börn þeirra taki þátt í einhverju af því sem skólaheilsugæslan bíður nemendum
upp á, eru þeir beðnir um að hafa samband við skólahjúkrunarfræðing sem fyrst. Ef ekkert heyrist frá foreldrum verður það
skoðað sem samþykki.
Lyfjagjafir í skólum
Í tilmælum frá landlækni um lyfjagjafir í grunnskólum frá maí 1999 kemur meðal annars fram að foreldrum/forráðamönnum ber
að afhenda hjúkrunarfræðingum þau lyf sem börn/unglingar eigi að fá í skólanum og að börn/unglingar skuli aldrei vera sendiboðar
með lyf. Sjá nánari upplýsingar á http://www.landlaeknir.is/?PageID=350.
Foreldrar
/forráðamenn þeirra barna/unglinga sem þurfa að taka lyf á skólatíma eru vinsamlega beðnir að hafa samband við
hjúkrunarfræðinga skólans til skrafs og ráðagerða um hvernig best verði komið til móts við þessi tilmæli.
Lús
Við viljum minna fólk á að skoða reglulega hár barna sinna og láta skólahjúkrunarfræðing vita ef lús finnst. Nánari
upplýsingar um lúsina er að finna á http://www.heilsugaeslan.is/?PageID=2047og http://www.landlaeknir.is/?PageID=831.



