Giljaskóli

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Félagsmiðstöð

Íþrótta- og tómstundaráð Akureyrar, ÍTA, sér um rekstur félagsmiðstöðva sem starfræktar eru við grunnskóla bæjarins.

Hlutverk félagsmiðstöðvanna er að bjóða börnum og unglinum upp á aðstöðu til að stunda hverskonar heilbrigt tómstundastarf á eigin forsendum. Dagskrá félagsmiðstöðvarinnar er alfarið í höndum unglinganna sjálfra undir leiðsögn starfsmanna. 

Félagsmiðstöð við Giljaskóla var opnuð um áramót 2005-2006 og hlaut hún nafnið Dimmuborgir.

Starfsmaður  í vetur er Karl Óðinn Guðmundsson.  Sími hans er 847-2445 og netfangið er  karlo@akureyri.is. Öllum er velkomið að hafa samband við hann ef þurfa þykir.  Honum til aðstoðar er Jóhanna Guðrún Magnúsdóttir.

Félagsmiðstöðin er opin á mánudags- og miðvikudagskvöldum frá kl 19:30 - 21:30 fyrir 8.-10. bekk. Einu sinni í mánuði eru svo miðstigsopnanir fyrir 5.-7. bekk frá kl 17:00 til 19:00.

Fyrir utan föst kvöld eru starfræktir ýmsir klúbbar eins og sportklúbbur, hönnunarklúbbur, útivistarklúbbur og stelpuklúbbur.

Karl verður með viðveru í skólanum á miðvikudagsmorgnum kl. 10:00 – 12:00.

Húsnæði Dimmuborga verður opið alla morgna í umsjá Þórunnar Sigurðardóttur.  Þangað geta nemendur leitað þegar gefa þarf frí í tímum m.a. vegna veikinda kennara. Þangað geta einnig leitað yngri nemendur sem vegna veikinda geta ekki farið í sund eða leikfimi.

Í félagsmiðstöðinni er fjölbreytt úrval af leiktækjum og aðstaða er góð til að hlusta á tónlist, dansa, spjalla og njóta lífsins."

Mynd augnabliksins

tn_img_0927.jpg

Auglýsingar

Mentor
Matartorg
Upplýsingaskjárinn
Fíkniefnasíminn
Nám að loknum grunnskóla
Dimmuborgir
Grenndargral

Teljari

Í dag: 12
Samtals: 40783

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn