Giljaskóli

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Hlutverk áfallateymis (aðgerðateymis) við þær aðstæður sem nú eru: 
Í áfallateymi/aðgerðateymi eru skólastjórnendur, skjólahjúkrunarfræðingur og námsráðgjafi. Einstaklingar geta leitað til starfsmanna í áfallateymi vegna eigin vanlíðunar eða til að benda á samstarfsmenn eða nemendur sem þeir hafa áhyggjur af.

Hlutverk starfsmanna í áfallateymi er að sinna fyrstu skrefum í sálrænum stuðningi, hlusta og sýna hluttekningu, vísa á aðila sem leita má til og í einhverjum tilvikum að fylgja einstaklingi fyrstu skrefin í lausnaleit.

Allir starfsmenn hafa það hlutverk að styðja við samstarfsmenn og nemendur í vanda, sé eftir því leitað, en hið formlega hlutverk liggur hjá starfsmönnum áfallateymis.

Hlutverk umsjónarkennara:
Skv. lögum nr. 91/2008 13.gr. er hlutverk umsjónarkennara m.a:
…..fylgjast náið með líðan nemenda og almennri velferð hans.
Við þær aðstæður sem eru í þjóðfélginu í dag þarf að huga sérstaklega að:

o     gefa sér tíma til að horfa, skynja og skoða
o     gefa sér tíma til þess að hlusta á nemendur og samstarfsmenn
o     gefa sér tíma til þess að gefa ráð
o     byggja upp traust í samskiptum
o     vera vakandi fyrir breytingum á atferli nemenda
o     vera í sambandi við foreldra og heimili
o     leita aðstoðar samstarfsfólks/samkennara/stýrimanna
o     leita aðstoðar stjórnenda/áfallateymis

 

Gagnlegir tenglar:

Ráðgjafartorg - upplýsingasíða Akureyrarbæjar fyrir bæjarbúa í erfiðleikum

Landlæknir

Lýðheilsustöð

Rauði krossinn

Umhuga

Heilsugæslan Akureyri

Félagsmálaráðuneytið

Aðstoð við börn eftir áfall

Sálrænn stuðningur

Glærur um sálrænan stuðning

Aðilar á Akureyri sem leita má til

 

Hjálparsími Rauða krossins er: 1717

Upplýsingamiðstöð, sími: 800 1190 og 545 8950, netfang:midstod@mfa.is

 

Mynd augnabliksins

img_2568.jpg

Auglýsingar

Mentor
Matartorg
Upplýsingaskjárinn
Fíkniefnasíminn
Nám að loknum grunnskóla
Dimmuborgir
Grenndargral

Teljari

Í dag: 10
Samtals: 40781

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn