Forvarnir

Forvarnir Markmiđ: Ađ stuđla ađ heilbrigđum lífsháttum og jákvćđri lífsýn nemenda og vinna gegn hverskyns sjálfseyđandi hegđun. Forvarnarfulltrúi

Forvarnir

Forvarnir

Markmið: Að stuðla að heilbrigðum lífsháttum og jákvæðri lífsýn nemenda og vinna gegn hverskyns sjálfseyðandi hegðun.
Forvarnarfulltrúi skipuleggur forvarnarstarf skólans og hefur yfirumsjón með því. Námsráðgjafi skólans gegnir hlutverki forvarnarfulltrúa. Hann sér um að forvarnaráætlun sé framfylgt, er virkur í gagnasöfnum og dreifir þeim upplýsingum sem við á. Hann aðstoðar starfsfólk við samþættingu forvarna við annað skólastarf, s.s. kennslu, félagslíf o.fl. Hann vinnur og endurmetur stefnumörkun skólans í forvörnum og sér um neyslu- og viðhorfskönnun meðal nemenda. Forvarnarfulltrúi tekur þátt í að samstilla krafta þeirra sem vinna gegn áfengis- og fíkniefnaneyslu í umhverfi nemenda. Hann er í nánu samstarfi við tengilið félagsmiðstöðva bæjarins og grípur inn í mál nemenda þar sem íhlutunar er þörf og stýrir því í farveg til réttra aðila. Forvarnarfulltrúi gætir fyllsta trúnaðar. Hann stýrir forvarnarneti sem skal myndað af kennurum, skólastjórnendum, foreldrum, skólahjúkrunarfræðingi, félagsþjónustu, forvarnarfulltrúa Akureyrarbæjar Bryndísi Arnarsdóttur , lögreglu, skólaskrifstofu og kirkju.
Forvarnir eru einng á hendi umsjónarkennara. Umfjöllun meðal yngstu nemendanna (1.-5. bekk) skal miðast við heilsufræði og heilsueflingu. Umfjöllun meðal eldri nemenda (6.-10. bekk) skal miðast við áhrif og skaðsemi hinna ýmsu fíkniefna bæði andlega, líkamlega, félagslega og sálfræðilega svo og menningarlega þætti sem tengjast neyslu. Fræðsla fyrir nemendur fer einkum fram í lífsleiknikennslu þar sem áhersla er lögð á að efla félags-, tilfinninga-, persónu- og siðgæðisþroska nemendanna. Nemendum skal kynnt hvert hægt sé að leita ef þeir þurfa á aðstoð að halda.
Skólinn skal efla samstarf við foreldraráð og vinna að fræðslu og kynningarstarfsemi fyrir foreldra og aðstandendur. Foreldrum skal kynnt forvarnarstefna skólans og þeim gerð grein fyrir hversu mikilvægur hlekkur þeir eru í henni.

Dagatal

« Maí 2012 »
SMÞMFFL
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031 

Mynd augnabliksins

Giljaskóli | v/Kiđagil | 603 Akureyri | 462 4820 | giljaskoli@akureyri.is | Vistun 462 4825 | Íţróttamiđstöđ 462 6270