Klúbbar

Klúbbastarfsemi félagsmiđstöđvanna á Akureyri Sameiginlegir klúbbar: Tölvuklúbbur: Markmiđ klúbbsins er ađ draga krakkana frá tölvuskjánum heima hjá sér

Klúbbar

Klúbbastarfsemi félagsmiðstöðvanna á Akureyri

Sameiginlegir klúbbar:

Tölvuklúbbur:

Markmið klúbbsins er að draga krakkana frá tölvuskjánum heima hjá sér að tölvuskjánum í Tróju. Munurinn á því er sá að krakkarnir þurfa að eiga í persónulegum samskiptum jafnvel þó svo að þau séu í tölvunni. Klúbburinn fer fram í tölvuverinu í Tróju og er tvisvar í viku til að sinna öllum skólunum.

Útivisitarklúbbur:

Markmiðið er að hafa það ótrúlega gaman og koma adrenalínu á hreyfingu en jafnframt fræðast um útivist hreyfingu og náttúruna. Stærðin á hópnum getur farið upp í allt að 25 krakkar í hóp og ef mikil aðsókn er í klúbbin þá er kannski hægt að bæta við hóp. Stefnan er að fara í tvær ferðir yfir veturinn, eina fyrir áramót og eina eftir áramót. Fundir eru einu sinni í mánuði. Aðrir minni viðburðir eru yfir veturinn eins og að fara í klifurvegginn og í fjallið.

Snillarnir:

Snillarnir er lokaður klúbbur ungmenna sem eru valdir af námsráðgjöfum grunnskólanna. Hópurinn hittist 2svar í mánuði og fer eftir fyrirfram ákveðinni dagskrá.

 

Klúbbar innan félagsmiðstöðva:

Strákaklúbbar:

Þar fá strákar frið til að vera strákar og geta tekist á við strákaleg verkefni og önnur strákalegheit. Í honum eru strákalegir hlutir ræddir og fá strákarnir sjálfir að hafa mikil áhrif á hvað skuli taka sér fyrir hendur í klúbbnum. Strákarnir hittast einu sinni í mánuði. Dæmi um dagskrárliði eru keila og lasertag. Strákum hentar mikið betur að ræða mál sín á milli á sama tíma og þeir eru að gera eitthvað og notar starfsmaður tímann til að stuðla að heilbrigðum og uppbyggilegum umræðum. Með þessu verður strákaklúbburinn líkari stelpuklúbb.

Stelpuklúbbar:

Stelpuklúbbur er hópastarf á vegum félagsmiðstöðvanna á Akureyri þar sem stúlkur hittast og ræða ýmisleg málefni, s.s. vináttu, tísku, kynlíf og margt fleira. Einnig verður farið í kaffihúsaferðir og haft það skemmtilegt í góðra vina hópi. Markmiðið er að styrkja sjálfsmynd og félagsþroska auk þess að vekja þátttakendur til umhugsunar um sjálf sig og umhverfi sitt. Stelpurnar hittast einu sinni í mánuði.

Dimmuborgir:
Strákaklúbbur og stelpuklúbbur 1x í mánuði.
Útivistarklúbbur 1x í mánuði
Enginn skráður í tölvuklúbb úr Dimmuborgum enn sem komið er.

 

 

Dagatal

« Maí 2012 »
SMÞMFFL
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031 

Mynd augnabliksins

Giljaskóli | v/Kiđagil | 603 Akureyri | 462 4820 | giljaskoli@akureyri.is | Vistun 462 4825 | Íţróttamiđstöđ 462 6270