Fréttabréf Giljaskóla
1. mars 2024
Kæra skólasamfélag
Marsmánuður er viðburðarríkur Í Giljaskóla og einkennist helst af undirbúningi fyrir árshátíðina okkar. Það fylgir mikil spenna og tilhlökkun að æfa atriði fyrir árshátíðina og það verður gaman að sjá gleðina á andlitum nemenda þegar þeir stíga á svið og sýna fyrir foreldra og aðra gesti. Snið árshátíðarinnar verður svipað og undanfarið og stefnt er að því að allir nemendur séu virkir þátttakendur. Skipulag sýninganna verður nánar auglýst þegar nær dregur með bréfi til foreldra og á heimasíðu skólans.
Nú erum við komin með niðurstöður í skólapúlsinum sem koma vel út að okkar mati en einstaklega gaman er að sjá hvað nemendur telja sig í góðum samskiptum við starfsfólk skólans auk þess sem líðan þeirra er góð að eigin mati. Við sjáum einnig þar þætti sem við viljum efla hjá þeim en þar ber helst að nefna trú á eigin námsgetu sem við teljum að hægt sé að vinna með í gegnum leiðsagnarnámið sem við leggjum nú mikla áheyrslu á.
Við tökum brosandi á móti marsmánuði með fullt af uppbroti og skemmtilegum skóladögum.
Bestu kveðjur Alla, Ragna og Thelma
Skólaþing
Fimmtudaginn 29. febrúar var haldið skólaþing hér í Giljaskóla þar sem nemendur , foreldrar og starfsfólk kom saman og ræddi um hvernig gera má góðan skóla betri. Þetta tókst afskaplega vel og erum við afar þakklát þeim sem komu að þessu. Allir árgangar áttu 2 - 4 fulltrúa sem komu með hugmyndir inn á fundinn frá bekkjarfélögum. Við munum nýta þær upplýsingar sem við fengum inn í innra mat skólans. Unnið var með fimm spurningar sem voru
1.Hvað er góður skóli?
2. Hverjir eru styrkleikar okkar í Giljaskóla?
3. Hverjiu viljum við breyta í Giljaskóla til að gera hann betri?
4. Hvað getum við gert til að gera hann enn betri?
5. Hvernig getum við gert gott mötuneyti ennþá betra?
Útivistardagur
Farið var á skauta í skautahöllina og upp í Hlíðarfjall á skíði, bretti og sleða. Dagurinn gekk mjög vel en ansi kalt var í veðri. Það komu glaðir og vel útiteknir nemendur til baka.
TAKK FYRIR OKKUR
Slökkviliðið heimsótti 3.bekk
Þann 20.febrúar fékk 3.bekkur skemmtilega heimsókn frá Slökkviliði Akureyrar en nemendur tóku þátt í eldvarnagetraun slökkviliðsins í desember en þá fengu nemendur eldvarnarfræðslu. Jökull Máni nemandi í 3.bekk fékk afhenta viðurkenningu og gjafabréf frá þeim. Til hamingju Jökull Máni.
Þorrablót hjá 4.bekk
Nemendur í 4. bekk voru með Pálínuboð og héldu þorrablót, það voru mjög áhugasamir og viljugir nemendur sem voru til í að smakka nánast allt sem í boði var. En það var í boði að smakka hákarl, harðfisk, hangikjöt, saltkjöt, súra og nýja lifrapylsu og blóðmör, flatbrauð, súrsaðir lundabaggar svo eitthvað sé nefnt. Að öllu öðru ólöstuðu þá var það sviðahausinn sem þótti mest spennandi.
Hlaðborð sem var mjög spennandi.
Þetta var spennandi og gott.
Mikill áhugi í hópnum.
Starfamessa
Nemendur Giljaskóla í 9. og 10. bekk tóku þátt í Starfamessu sem haldin var í Háskólanum á Akureyri fimmtudaginn 29. febrúar. Starfamessa er árlegur viðburður sem skipulagður er af náms- og starfsráðgjöfum í grunnskólum Akureyrarbæjar í samvinnu við HA. Á starfamessu koma fjölmörg fyrirtæki og stofnanir saman á einum stað til þess að kynna sig og sín störf fyrir nemendum. Nemendur voru mjög ánægðir eftir kynninguna.
Glitraðu með einstökum börnum
Nemendur og starfsfólk tóku þátt í alþjóðadegi sjaldgæfra sjúkdóma sem haldin var 29. febrúar. Gaman var að sjá hversu margir mættu glitrandi til að sína stuðning.
Skóladagatal 2024-2025
Nú er skóladagatal næsta árs að byrja að taka á sig mynd. Ljóst er að skóli verður settur þann 22. ágúst og haust/vetrarfrí verður 21. og 22. október og 5. - 7 mars. Gott að vita fyrir þá sem vilja skipuleggja sig lengra fram í tímann.
Framundan
5. mars - Stuttmyndadagar
6. mars - Stuttmyndadagar
7. mars - Stuttmyndadagar
14. mars - Dagur stærðfræðinnar
19. mars - Stuttmyndasýning
20. mars Árshátíð 1. - 7. bekkur
21. mars Árshátíð 1. - 7. bekkur
23. mars - 1. apríl PÁSKAFRÍ