Viðtalstímar hjá 1. bekk

Nú er komið að skólabyrjun.  Fimmtudaginn 21. og föstudaginn 22. ágúst fara fram einstaklingsviðtöl þar sem nemandi ásamt foreldrum / forráðamönnum er boðaður til viðtals til umsjónarkennara í stofu bekkjarins. Viðtalslista má sjá hér. Í viðtalinu verður farið yfir ýmislegt sem tengist komandi vetri. Gott væri að hafa með sér það sem óskað var eftir á innkaupalista (hann er að finna hér á heimasíðunni). Munið að merkja allt mjög vel. Hjúkrunarfræðingur er til viðtals þessa daga frá kl. 8:15 - 14:00

Tvo fyrstu kennsludagana, þ.e. mánudaginn 25. og þriðjudaginn 26. ágúst verður kennsla hjá umsjónarkennara frá  kl. 9:00 - 12:00. 1.AE verður í stofu 109 og 1.TB verður í stofu 108. Stofurnar  eru staðsettar á neðsta gangi.

Hlökkum til ánægjulegs samstarfs á komandi vetri.

Bestu kveðjur, Agla og Thelma