Útivistardagur í Hlíðarfjalli 9.feb.

Við ætlum að reyna að fara í Hlíðarfjall á morgun.  Útlit  er fyrir þokkalegt veður og við vonum það besta. Munum setja hér inn á heimasíðu í fyrramálið eins fljótt og hægt er, ekki seinna en kl. 7:30 ef kemur til frestunar.

Endilega lesið bréfið sem sent var fyrir viku.

Mætingar við skólann er sem hér segir:

8. - 10. bekkur. Mæting í skóla kl. 08:00. Rútur í Hlíðarfjall kl. 08.15 og til baka kl.13:00

5. – 7. bekkur. Mæting í skóla kl. 08:15. Rútur í Hlíðarfjall kl. 08:30 og til baka kl.12:30

1. – 4. bekkur. Mæting í skóla kl. 08:30. Rútur í Hlíðarfjall kl. 08:45 og til baka kl.12:00 þá er matur og skólalok (eða Frístund fyrir þá sem þar eiga að vera)

Með von um góða skemmtun í Hlíðarfjalli

Starfsfólk Giljaskóla