Til foreldra/forráðamanna barna sem hefja skólagöngu haustið 2017

Í febrúarmánuði fer fram innritun nemenda sem hefja nám í 1. bekk í grunnskólum Akureyrar haustið 2017.

Í Giljaskóla verður opið hús fyrir foreldra barna sem hefja nám í grunnskóla haustið 2017, fös. 24. feb. kl. 9-11. Foreldrar eru hvattir til að koma á þeim tíma og kynna sér skólann.

Á heimasíðu fræðslusviðs, https://www.akureyri.is/skoladeild/moya/page/skoalval-grunnskola má finna upplýsingar um skólaval á Akureyri, sértæka þjónustu, viðmiðunarreglur um inntöku, rafræn umsóknareyðublöð og fleira.