Þakkir til foreldrafélagsins

Í vikunni gaf foreldrafélag Giljaskóla nýtt og glæsilegt borðtennisborð í Dimmuborgir. Gleðin með þessa veglegu gjöf er gífurleg því áhugi á borðtennis er mikill á meðal nemenda á unglingastigi. Nokkrir galvaskir nemendur aðstoðuðu við uppsetningu á borðinu og er allt klárt og það komið í notkun. Nemendur á unglingastigi og Birna í Dimmuborgum vilja senda foreldrafélagi Giljaskóla kærar þakkir fyrir þessa stóru og flottu gjöf.  
Einnig gaf foreldrafélagið nemendum nokkra fót- og körfubolta, bestu þakkir fyrir það.