Skólasetning hjá 2. - 10. bekk / viðtalsdagar hjá 1. b

Skólasetning fyrir 2. - 10. bekk er þriðjudaginn 22. ágúst kl. 10:00. Nemendur mæta í íþróttahúsið og mega gjarnan nota sína innganga til að skilja skóna þar eftir. Foreldrar er hvattir til að mæta líka. Kynning á starfi vetrarins verður í flestum bekkjum. Skóli hefst svo samkvæmt stundaskrá hjá 2. - 10. bekk 23. ágúst.

Viðtalsdagar hjá 1. bekk eru 22. og 23. ágúst og munu umsjónarkennarar senda upplýsingar um viðtalstíma í tölvupósti í dag föstudaginn 18. ágúst. Skóli hefst svo samkvæmt stundaskrá hjá 1. bekk 24. ágúst.

Ath. þeir nemendur sem eru skráðir í Frístund eftir skólasetningu ca. 10:30 - 11:00 fá hádegismat í skólanum.