Skólasetning hjá 2.-10 bekk

Skólasetning hjá 2. - 10. bekk verður fimmtudaginn 21. ágúst kl. 10:00 í íþróttamiðstöð við Giljaskóla. Að lokinni skólasetningu munu umsjónarkennarar fara með nemendum sínum upp í stofur. Þar fá nemendur afhentar stundaskrár og geta gengið frá skóladótinu sínu. Að því loknu munu flestir kennarar vera með námskynningar og munu þeir senda ykkur tölvupóst varðandi það.