Norræna skólahlaupið 8.sept.

Næsta föstudag 8. september,  ætlum við að skokka Norræna skólahlaupið saman …bara gaman.
Við stefnum að því að skokka milli klukkan 10 og 11 að venju.

Þetta árið verður þetta samt aðeins hátíðlegra en vanalega, þar sem Norræna skólahlaupið verður sett/opnað á landinu þetta árið hjá okkur í Giljaskóla.

ÍSÍ verður með fulltrúa á staðnum, kannski skutlum við flottu lukkudýri á lóðina og eitthvað af fjölmiðlafólki verður á svæðinu.

Að sjálfsögðu biðjum við alla að koma vel klædd til útiveru og hreyfingar á föstudaginn kemur, t.d. aukasokka og slíkt.

Verið endilega í bandi ef spurningar vakna,

Kveðja,

íþróttakennarar