Dagskráin í desember

Enn er komið að aðventu og samkvæmt venju verður eitthvað um að hefðbundin kennsla sé brotin upp í desember í tengslum við hátíð ljóss og friðar. Reynt er að skapa notalegt andrúmsloft innan veggja skólans og búa þannig um hnútana að allir finni eitthvað við sitt hæfi.

Þrátt fyrir að ekki sé tónmenntakennari í  skólanum ætlum við samt að koma saman og syngja á svölunum.

Svalasöngurinn er eftirtalda daga 5., 8., 13., 16. og 19. desember.

Fyrir helgi var 1. desember og var hann haldinn hátíðlegur með samkomu á sal þar sem við rifjuðum upp fróðleiksmola varðandi atburði fullveldisdagsins og sungum saman nokkur lög. Við höfum einnig skapað þá venju að mæta í sparifötunum í skólann þennan dag.

2. desember var skreytingadagur hjá  yngri nemendum.  Nemendur  dunda  þá við eitthvert jólaföndur og skreyta stofuna sína fyrir aðventuna.

5. desember var skreytingadagur hjá unglingastigi.

7. desember fer 4. bekkur í heimsókn í Minjasafnið.

8. desember fer 7. bekkur í heimsókn í Minjasafnið.

9. desember er 1.bekk boðið á jólatónleika Norðurljósa í Hofi kl.11.00 ( tónleikarnir taka um 45 mín.)

12. desember er 4. bekk er boðið á leiksýninguna Stúf í Samkomuhúsinu kl. 11.00 (Sýningin tekur um 60.mín.). Sýningin er samstarfsverkefni MAK og Norðurorku

13. desember er jólagleði Frístundar.

14. desember er  3. bekk er boðið á leiksýninguna Stúf í Samkomuhúsinu kl. 11.00. (Sýningin tekur um 60.mín.).  Sýningin er samstarfsverkefni MAK og Norðurorku.

15. desember yngsta stig með jólabíó á sal.

16. desember mun 6. bekkur sýna helgileik að venju á sal kl. 9.30 og 10.35.  Sýnt verður fyrir  1. – 7. bekk.  Ef foreldrar vilja koma og horfa á er það velkomið.  Áætlaður sýningartími er um 15 mínútur.

19. desember ætlar unglingastigið að vera með spiladag og bíó á sal.

20. desember Litlu jól og jólafrí

 

Vinabekkjadagar eru áætlaðir á aðventunni en þá eiga vinabekkir notalega stund saman með kakó og smákökur.

Á bókasafninu er boðið uppá sannkallaða aðventustund.  Ingunn les úr nýjum jólabókum og býður upp á piparkökur.

Litlu jólin eru á dagskrá 20. des. Nemendur mæti í stofur kl.8.30 og eiga fyrst notalega stund saman með kennurum sínum, síðan er farið í íþróttasalinn og gengið þar í kringum jólatréð. Upp úr kl. 10.15 ættu nemendur að ganga út í jólafrí. Nemendur mæta  svo aftur í skólann á venjulegum tíma eftir jólafrí miðvikudaginn 4. janúar.

Sú ákvörðun hefur verið tekin að vera ekki með jólakort milli nemenda en við höldum í þann sið að skiptast á litlum jólagjöfum sem kosta um 500 kr.

Starfsmenn gefa andvirði sinnar jólagjafar til mæðrastyrksnefndar og hefur skólinn bætt við þá upphæð því sem kostað var áður til jólakorta sem send voru. Ef foreldrar / nemendur vilja styðja mæðrastyrksnefnd með smáframlagi getum við komið því til skila. Með von um að aðventan verði tími ljóss og friðar bæði hér í skólanum og hjá okkur öllum. Starfsmenn þakka liðið ár og óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.

Gleðilega aðventu. Starfólk Giljaskóla