Árshátíðir

Árshátíðir nemenda verða haldnar í íþróttasal skólans þriðjudaginn 13. mars, miðvikudaginn 21. mars og fimmtudaginn 22. mars kl. 17:00.

Aðgangseyrir er 500 krónur fyrir fullorðna og gesti. Nemendur í Giljaskóla og yngri börn borga ekki aðgangseyri. Selt er inn við innganginn í íþróttahúsinu.

Aðgangseyrir að sýningum skiptist síðan á milli sérdeildar, 1. - 9. bekkja og er nýttur til vorfagnaða.

Foreldrasýningar í íþróttasal Giljaskóla verða sem hér segir;

Þriðjudagur 13. mars kl. 17:00 sýning stuttmynda nemenda í 8.-10. bekk; afrakstur þemadaga.

Miðvikudag 21. mars kl. 17:00 sýna sérdeild (myndband), 1.GS, 2. b, 4.ÁEK, 5.KMÞ og 6.AR.

Fimmtudag  22. mars kl. 17:00 sýna sérdeild (myndband), 1.LS, 3. b, 4.AE, 5.TB, 6.BK og 7.UKÁ.

Sýningar nemenda munu taka um það bil eina klukkustund.

Sjoppa verður opin í íþróttasalnum á stuttmyndasýningunni þriðjudaginn 13. mars en að loknum sýningum 21. og 22. mars verður kaffisala á vegum 10. bekkjar í sal skólans til styrktar ferðasjóði bekkjarins.

 

Kaffi og meðlæti kostar 1200 krónur fyrir fullorðna og 8.-10. bekk, 500 krónur fyrir nemendur í 1. - 7. bekk og yngri börn fá frítt.

 

Árshátíðarball verður fyrir nemendur í 8.-10. bekk og afhending á Giljaranum vegna stuttmynda verður föstudags­kvöldið 16. mars.

Verðlaunaafhendingin hefst kl. 20:00 (aðgangur ókeypis).

Árshátíðarballið hefst að afhendingu lokinni eða um kl. 20:45 og stendur til miðnættis.

Nemendum í 7. bekk Giljaskóla gefst kostur á að koma á ballið og dvelja til kl. 23.00.  Aðgangseyrir á ballið er kr. 1500.

 

Viðvera nemenda í skólanum verður samkvæmt stundaskrá þessa daga.

Nemendur eru beðnir um að mæta í heimastofur sýningardaga ekki seinna en kl. 16:30.

 

Við vonum að allir sjái sér fært að mæta og eiga góða stund í skólanum með börnum sínum.

Vinsamlegast virðið að það þarf að vera næði í salnum svo allir njóti sýningarinnar bæði nemendur sem eru að sýna á sviði og eins áhorfendur sem vilja geta notið þess að fylgjast með sýningunni. Gætið þess að börn ykkar séu ekki hlaupandi um salinn á meðan á sýningum stendur.

 

Kær kveðja og góða skemmtun,

starfsfólk Giljaskóla