Hlutverk

Allir foreldrar barna í Giljaskóla eru í foreldrafélaginu, nema ţeir óski sérstaklega eftir ţví ađ vera ţađ ekki. Foreldrafélagiđ er samráđsvettvangur

Tilkynningar

Hlutverk foreldrafélagsins

Allir foreldrar barna í Giljaskóla eru í foreldrafélaginu, nema þeir óski sérstaklega eftir því að vera það ekki.

Foreldrafélagið er samráðsvettvangur foreldra og þrýstihópur um hluti sem betur mega fara. Auk þess stendur foreldrafélagi fyrir fræðslu til foreldra og barna og skemmtun fyrir börn í skólanum eftir því sem aðstæður leyfa.

Félagsgjöld í foreldrafélagið eru ákveðin á aðalfundi og eru að jafnaði innheimt á haustönn hvers skólaárs.

Stjórn foreldrafélagsins er samsett úr 5-8 foreldrum, sem eru kjörnir á aðalfundi foreldrafélagsins í maí ár hvert.

Stjórnin fundar uþb. Einu sinni í mánuði, allt skólaárið, en oftar ef þurfa þykir.

Fulltrúi úr stjórn foreldrafélagsins situr í Skólaráði Giljaskóla og SAMTAKA, samráðsfélagi foreldrafélaga grunnskólanna á Akureyri.

Stjórn foreldrafélagsins fylgir því eftir að kjörnir séu bekkjarfulltrúar í hverjum bekk að hausti, sem eru tengiliður foreldrafélagsins við bekkinn. Stjórnin úthlutar einnig peningum til bekkjarfulltrúa ár hvert, sem ætlast séu til að séu nýttir í samveru foreldra og barna í bekknum.

Dagatal

« Maí 2012 »
SMÞMFFL
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031 

Mynd augnabliksins

Giljaskóli | v/Kiđagil | 603 Akureyri | 462 4820 | giljaskoli@akureyri.is | Vistun 462 4825