Giljaskóli, skóli á grćnni grein
Flýtilyklar
Stöndum saman gegn einelti

Í tilefni dagsins verđur undirritađur ţjóđarsáttmáli um jákvćđ samskipti. Forsćtisráđherra er verndari átaksins og munu velferđarráđherra, fjármálaráđherra og mennta- og menningarmálaráđherra undirrita sáttmálann fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Ennfremur eru fjöldi félaga og samtaka ađilar ađ samningnum.Viđ undirritunina verđa einnig afhent gul armbönd sem gerđ hafa veriđ í tilefni dagsins og bera yfirskriftina: Jákvćđ samskipti. Ţeim verđur í kjölfariđ dreift til almennings eftir ţví sem ađ upplag endist.
Einelti spyr ekki um aldur, ţjóđfélagshópa eđa kyn og ţađ ţrífst einfaldlega allsstađar ţar sem ţađ er látiđ viđgangast. Ábyrgđ okkar allra er ţví mikil og ţađ er í okkar höndum ađ vinna bug á ţessu ţjóđfélagsmeini. Ţađ er ekki flókiđ ef allir taka höndum saman og sannmćlast um ákveđna sátt , ţjóđarsáttmála um jákvćđ samskipti.
Í tilefni af baráttudegi gegn einelti ţann 8. nóvember verđur opnađur vefurinn www.gegneinelti.is og ţar gefst fólki kostur á ađ undirrita eftirfarandi sáttmála:
Ţjóđarsáttmáli um baráttu gegn einelti
Viđ undirrituđ skuldbindum okkur til ţess ađ vinna af alefli og einurđ gegn einelti í samfélagi okkar. Viđ munum standa vörđ um rétt fólks til ţess ađ lifa í sátt og samlyndi viđ umhverfi sitt. Viđ munum sérstaklega gćta réttar barna og ungmenna sem og allra hópa sem eiga sér hvorki málsvara né sterka rödd. Viđ munum öll, hvert á okkar sviđi, skuldbinda okkur til ađ hafa áhrif til góđs á nánasta umhverfi okkar. Viđ ćtlum ađ vera góđ fyrirmynd og leggja okkar af mörkum til ađ vinna bug á ţví samfélagslega böli sem einelti er.
Verkefnisstjórnin hvetur alla ţá fjölmörgu ađila og samtök sem starfa á ţeim vettvangi sem átakiđ nćr til, til ţess ađ taka höndum saman og helga 8. nóvember baráttunni gegn einelti. Sérstaklega er ţessu beint til leikskóla, grunn- og framhaldsskóla, félags- og frístundamiđstöđva, auk vinnustađa og stofnana. Ýmislegt er ađ hćgt ađ gera í tilefni dagsins, svo sem ađ halda upp á hann međ táknrćnum hćtti eđa beina umrćđunni ađ einelti og afleiđingum ţess í samfélaginu.
Verkefnisstjórnin vonast til ađ sem flestir í samfélaginu skrifi undir ţjóđarsáttmálann og taki ţátt í ţví ađ setja umrćđuna um einelti í brennidepil ţennan dag - málefniđ er brýnt og til mikils ađ vinna ef í sameiningu tekst ađ koma á ţjóđarsáttmála um jákvćđ og uppbyggileg samskipti.
F.h. Verkefnisstjórnar um ađgerđir gegn einelti
Árni Guđmundsson verkefnisstjóri
Greinargerđ um mögulegar ađgerđir gegn einelti í skólum og á vinnustöđum, júní 2010