Giljaskóli, skóli á grćnni grein
Flýtilyklar
Útivistartími
Barnaverndarlög nr.80/2002 92. gr.
Á tímabilinu 1. maí til 1. september lengist útivistartími barna um tvær klukkustundir. Aldursmörk þessa ákvæðis miðast við fæðingarár en ekki fæðingardag. Það er mikilvægt að halda útivistarreglur. Vissulega reyna mörg börn að komast eins langt og þau geta varðandi útivistina, gjarnan með þeim rökum að allir hinir megi. Ef foreldrar koma sér saman um að halda ákveðnar reglur veitist þeim mun auðveldara að fylgja þeim eftir – allir vita þá hvaða reglur eru í gildi. Við vitum að myrkrið skapar hættur fyrir börnin og tækifæri fyrir þá sem hafa myrkraverk í huga. Útivistarreglurnar eru settar af yfirvöldum og þeim er skylt að fylgja og þær eru að sjálfsögðu settar í þeim tilgangi að skapa börnum öryggi. Eru kvöldin ekki einmitt upplagður tími fyrir samverustundir fjölskyldunnar! Á björtum sumarkvöldum getur verið erfitt fyrir foreldra að neita barninu um að vera lengur úti en útivistarreglur segja til um. Reynt er að réttlæta lengri útiveru með því hve fá björt og falleg kvöld eru hér á Íslandi. Nægur nætursvefn er mikilvægur börnum og unglingum, hann er forsenda vellíðunar barnsins. Foreldrar verða að hafa í huga að þegar barnið er búið að vera úti að leika sér allan daginn er þreytan farin að segja til sín. Þreyta eykur líkurnar á slysum þar sem barnið á erfiðara með að bregðast við umhverfinu. Athyglin er minni, viðbragðsflýtirinn seinni og jafnvægið verra. Svo virðist sem foreldrar slaki á útivistarreglunum þegar barnið eldist. Við það getur hætta á áhættuhegðun barnsins aukist t.d. fikt með áfengi eða aðra vímugjafa. Árvekni, átaksverkefni um slysavarnir barna og unglinga. Tölvupóstur arvekni@arvekni.is Heimasíða http://www.arvekni.is/
|