Til Foreldra

 Í upphafi skólaárs Ţegar skólinn hefst ađ nýju á haustin er ađ mörgu ađ hyggja. Viđ viljum minna foreldra á ađ merkja vel allt skóladót barnanna sem og

Tilkynningar

Til Foreldra

 Í upphafi skólaárs

Þegar skólinn hefst að nýju á haustin er að mörgu að hyggja. Við viljum minna foreldra á að merkja vel allt skóladót barnanna sem og föt.  Þá er einnig gott að fara yfir skólatöskur reglulega og athuga hvort eitthvað vantar. Foreldrar bera einnig mikla ábyrgð á heimanámi og þurfa að fylgjast með og aðstoða eftir megni þegar það er unnið.

 Við Giljaskóla er ýmis þjónusta í boði fyrir nemendur, s.s. skólabókasafn, námsráðgjafi, skólahjúkrunarfræðingur, mötuneyti og skólavist.  Skráning bara í mat og í skólavistunina Frístund fer fram á netinu á matartorg.is. Síðasti skráningardagur fyrir september er 22. ágúst fyrir Frístund en skömmu síðar fyrir mötuneytið. Þeir sem hafa gleymt aðgangsorðum sínum geta haft samband við ritara skólans. Þjónusta námsráðgjafa og skólahjúkrunarfræðings verður nánar kynnt síðar.

 Nú á haustdögum eru miklar framkvæmdir í gangi hér í Giljaskóla. Bæði innandyra og á skólalóðinni. Verið er að ganga frá bættri aðstöðu ritara sem mun auðvelda aðgengi nemenda að þeirri þjónustu sem hann veitir en á skólalóðinni er verið að setja upp sparkvöll. Við biðjum nemendur að sýna þolinmæði meðan verið er að ljúka þessum verkefnum.

Uppbyggingarstefnan

 Uppbyggingarstefnan er ferli sem kennir ungu fólki sjálfsaga. Það er byggt á þeirri meginhugmynd að fólk sé fætt með sjálfstæðan vilja  -  að áhuginn komi að innan. Við hegðum okkur til að líkjast þeirri mynd sem við höfum varðveitt af því hvernig manneskjur við viljum vera í óskaveröld okkar.

 Við höldum kannski að hegðun okkar stjórnist af löngun til að eignast hluti sem við girnumst eða jafnvel til að fá hól frá öðrum. En þessi markmið eru alltaf tengd því hvernig við sjáum okkur sjálf í samanburði við fólkið sem við umgöngumst og þá hluti sem við girnumst. Við, fullorðna fólkið, erum ekki vön því að tala við börn um hvernig þau sjá sig sjálf  -  hverjum þau vilja líkjast  -  því við höfum venjulega mestan áhuga á að breyta hegðun þeirra, láta þau samþykkja sjónarmið okkar, frekar en að gefa þeim kost á sjálfsskoðun.

Uppbyggingarstefnan beinir sjónum fyrst að persónunni. Síðan biðjum við persónuna að líta í eigin barm og meta hvaða áhrif hegðun hennar hefur á aðra.

 Í Giljaskóla hefur verið unnin verkáætlun í samræmi við uppbyggingarstefnuna og hugað að því hvernig við getum hagað starfi okkar samkvæmt henni og unnið með dyggðir skólans, Ábyrgð—Metnaður—Víðsýni—Kærleikur—Lífsgleði—Virðing, um leið.

 Um hollar og góðar lífsvenjur

Síðasta vetur bar oft á tíðum á umferðaröngþveiti á bílastæðinu hér við Giljaskóla. Þess vegna viljum við minna foreldra á að á bílastæðinu er gert ráð fyrir einstefnu akstri frá norðri til suðurs (andsælis) en að sjálfssögðu hvetjum við nemendur til að ganga í skólann enda yfirleitt ekki um langan veg að fara.

 Auk þess sem hreyfing er holl er hún stór hluti af heilbrigðum lífsstíl ásamt réttu mataræði. Þess vegna leggjum við í Giljaskóla áherslu á að nemendur séu með hollt og gott nesti en sælgæti og sætabrauð, gos og glundur, er stranglega bannað nema við sérstök tækifæri.

 Ný nálgun á lestrarkennslu

 Síðustu ár hafa kennarar við Giljaskóla þróað leið við lestrarkennslu sem byggir á því að kenna lestur í gegnum ritun. Veturinn 2005—2006 var skipað í nefnd til að móta stefnu skólans í lestrarkennslu fyrir yngstu nemendurna. Ákveðið hefur verið að taka ofangreinda nálgun við lestrarkennslu formlega upp við skólann núna í haust. Á kynningarfundi í september verða áherslur og aðrar aðferðir kynntar og foreldrum leiðbeint um hvernig þeir geti aðstoðað börn sín við lestrarnámið.

 

 Þessi aðferð er byggð á starfi Svövu Hjaltalín, Önnu Kristínar Arnarsdóttur, núverandi umsjónarkennara 4. bekkjar, og Rannveigar Oddsdóttur en þær hafa notað þessa aðferð í kennslu með góðum árangri undanfarin ár.

 Útiskóli / Útivistardagur

 Eins og sést á atburðadagatalinu á forsíðu Iðsins er útiskólinn settur lóðrétt á þrjár vikur. Þetta má þó ekki misskilja því einungis er um einn dag að ræða.

 

 Kennarar munu hins vegar sjálfir ákveða hvenær hver bekkur, árgangur eða stig nýtir sér daginn og láta nemendur vita með fyrirvara.

Metið val

 Þeir nemendur í 9. og 10. bekk sem fá félags- eða íþróttastarf utan skólans metið sem valgreinar eru minntir á að skila inn þeim eyðublöðum sem þarf til þess. Um er að ræða umsókn um að fá félagsstarf metið sem valgrein en síðar þarf svo að skila staðfestingu frá þjálfara/kennara um ástundun á önninni. Nokkuð hefur borið á að ganga þarf eftir þessum blöðum og eru foreldrar beðnir að athuga hjá börnum sínum hvernig skilum er háttað. Eyðublöðin má nálgast hjá ritara en deildarstjóri mun einnig dreifa þeim til þeirra sem eru skráðir í metið val.

 

Íþróttir

Í vetur verða íþróttir í Giljaskóla kenndar á tveimur stöðum. 1.—7. bekkur fær sína íþróttakennslu í íþróttahúsi Síðuskóla eins og í fyrra. 1.—4. bekkur er keyrður á milli í rútum, en 5.—7. bekkur gengur.  Unglingastigið, 8.—10. bekkur, er í íþróttum í íþróttahúsi Glerárskóla og gengur þangað.   Í vetur er kynjaskipt í íþrótta- og sundtímum á unglingastigi. Við minnum á að krakkarnir eiga að mæta með þægileg föt og í góðum skóm til að geta tekið þátt í útiíþróttatímum. Þá þurfa allir að mæta með íþróttaföt og handklæði í inniíþróttir. Sundkennsla í 3. - 10. bekk fer fram í Sundhöll Akureyrar á öllum stigum og þangað fer rúta frá skólanum. Sundnámskeið fyrir nemendur í 1.—2. bekk verður í vor.

 

Giljaskóli | v/Kiđagil | 603 Akureyri | 462 4820 | giljaskoli@akureyri.is | Vistun 462 4825