Giljaskóli, skóli á grćnni grein
Flýtilyklar
Öryggismál
Á leið í skólann
Mikil umferð er við skólann á
morgnana. Mörgum börnum er ekið í skólann. Oft skapast mikið öngþveiti og því er nauðsynlegt að fyllstu varúðar sé
gætt við akstur að skólanum. Við leggjum áherslu á ekið að skólanum á bílastæði að norðan og út
að sunnan við leikskólann . Útskot fyrir framan stétt er ætlað skólabíl og það á ekki nýta sem stæði
heldur til þess að hleypa börnum út. Leitast skal við að hafa öryggi barna í fyrirrúmi. Ákveðin hætta getur skapast á leið
í skólann. Við óskum eftir því
að starfsfólk skólans og foreldrar sameinist um að finna börnunum auðveldustu leiðina í skólann, fræða þau um reglur í
umferðinni og hvetja þau til að nota alltaf endurskinsmerki. Samstarf er við lögreglu um umferðaröryggi barna. Lögreglan heimsækir bekkjardeildir og veitir
fræðslu. Við upphaf skóla býður umferðarráð 6 ára nemendum upp á umferðarfræðslu.
Í upphafi skóladags
Skólinn er yfirleitt opnaður kl. 7.30 að morgni þegar
húsvörður kemur til starfa en skólaliðar hefja gangavörslu 7.45. Nemendur fá að fara inn í stofur sínar og geta unað
þar við ýmis verkefni.
Móttaka er fyrir nemendur sérdeildar.
Frímínútnagæsla
Starfsmenn sinna eftirliti í frímínútum. Fjórir starfsmenn sinna almennri gæslu úti og tveir vegna sérdeildar. Nokkrir sjá um gæslu inni. Verði foreldrar varir við það hjá börnunum sínum að eitthvað fari úrskeiðis í frímínútum eða á ferðum úr og í skóla (stríðni eða annað áreiti) þá eru það vinsamleg tilmæli okkar að gert sé viðvart strax þannig að hægt verði að taka á málum áður en í óefni er komið.
Slys eða veikindi
Beri slys að höndum eða barn veikist á skólatíma er
hringt í foreldra eða ábyrgðarmann og óskað eftir að barnið verði sótt í skólann eða aðrar viðeigandi
ráðstafanir gerðar. Grunnskólabörn á Akureyri eru slysatryggð í skólanum og á leið í og úr skóla.
Slysakostnaður er greiddur að því marki sem hann fæst ekki greiddur úr tryggingum heimilisins eða frá Tryggingastofnun ríkisins. Akureyrarbær
greiðir fyrstu komu á slysavarðstofu eða til annarra sérfræðinga. Eigin áhætta foreldra í slysatjóni er kr. 18.000 en engin þegar
um tannbrot er að ræða. Um aðrar tryggingar en slysatryggingar er ekki að ræða af hálfu skóla.
Skólinn er ekki tryggður fyrir þjófnaði, skemmdum
á fatnaði, fjármunum eða munum nemenda.Tjónþola ber að snúa sér til síns tryggingafélags eða lögreglu ef slík mál koma upp.
Skólahjúkrunarfræðingur ber ábyrgð á skráningu slysa og heldur
yfirlit um þau.