|
Aðgerðir gegn einelti Einelti er langvarandi ofbeldi, líkamlegt eða andlegt, þar sem einn eða fleiri níðast á einum sem ekki
kemur vörnum við. Einelti felur í sér misbeitingu á valdi þar sem gerandinn beitir hótunum og vill ráða yfir þolandanum. Einelti birtist
í mörgum myndum,s.s.:· Líkamlegt: Meiðingar, hrindingar, klór,
spörk.· Í orði : Uppnefni, niðrandi athugasemdir, hótanir og endurtekin
stríðni.· Efnislegt: Eigum stolið, þær faldar eða
eyðilagðar.· Félagslegt: Viðkomandi skilinn útundan eða
hundsaður.· Andlegt: Viðkomandi þvingaður til að gera eitthvað sem stríðir algerlega gegn
réttlætiskennd hans og sjálfsvirðingu, svipbrigði og augnaráð.
Forvarnir
Mikilvægt er að börn séu alin upp við jákvæða athygli. Í Giljaskóla er stefnt að því að nemendur læri að setja
sig í spor annarra, sýna umburðarlyndi og bera virðingu fyrir öðrum. Sjálfsöruggt barn er síður líklegt til að vera lagt í
einelti og er betur í stakk búið til að takast á við stríðni og einelti.
- Einelti er ekki liðið í skólanum.
- Skólareglur eru skýrar.
- Áhersla er lögð á öflugt samstarf heimila og skóla frá byrjun skólagöngu.
- Áhersla er á jákvæðan, lýðræðislegan skólabrag.
- Unnið var með eitt af einkunnarorðum skólans ábyrgðá vorönn 2005
- Í skólanum á sér stað opin umræða um einelti.
- Staða kennara og annars starfsfólks er styrkt með menntun og fræðslu.
- Öflugt samstarf skal vera við félagasamtök og félagsmiðstöðvar.
- Vinabekkir stofnaðir innan skólans þar sem yngri bekkir tengjast eldri bekkjum.
- Skipulagðar leikjastöðvar í frímínútum sem starfsmenn bera ábyrgð á.
- Nemendur eldri bekkja virkjaðir til að gæta yngri nemenda í frímínútum.
- Kennari aðstoðar nemendur við að ákveða hvað gera skuli í frímínútum.
- Sögur lesnar fyrir nemendur þar sem fjallað er um einelti.
- Fræðsluheimsóknir frá t.d. lögreglunni (einelti er ofbeldi), sálfræðingi eða öðrum sem koma að eineltismálum, t.d.
fólki sem hefur orðið fyrir einelti.
- Líðan nemenda könnuð með einfaldri spurningakönnun.
- Starfsmenn, nemendur og foreldrar skulu tilkynna ef grunur er um einelti.
Hvernig tökum við á einelti
Í skólanum er starfrækt aðgerðateymi sem tekur á eineltismálum. Í því eru skólastjórnendur,
hjúkrunarfræðingur, námsráðgjafi og kennarar. Umsjónarkennari barns sem verður fyrir einelti er í samstarfi við teymið.Ferli við
úrvinnslu á eineltiMálið tekið fyrir á fundi aðgerðateymis og leiðir til úrbóta ræddar og gerð
aðgerðaáætlun eftir alvarleika málsins. Leiðirnar gætu verið eftirfarandi.Umsjónarkennari geri tengslakönnun meðal nemenda.
Einstaklingsviðtöl við alla í bekknum (eða hluta nemenda) til að kortleggja eineltið. Nemendur hafa færi á að koma með hugmyndir að
lausn og leiðir til að taka á vandanum. Aðgerðateymi skólans sér um að taka viðtölin og gerir umsjónarkennara grein fyrir
niðurstöðum.Umsjónarkennari gerir forráðamönnum gerenda og þolenda grein fyrir aðgerðaráætlun og hlutverki foreldra.
Umsjónarkennari gerir kennurum, skólastjórnendum og öðru starfsfólki skólans grein fyrir stöðunni.Umsjónarkennari lætur
foreldra/forráðamenn allra nemenda í bekknum vita um stöðuna sem upp er komin og hver næstu skref verða.Einstaklingsviðtöl við þá
nemendur sem oftast voru nefndir í áður nefndum viðtölum, bæði gerendur og þolendur.Umsjónarkennari fylgist með ástandinu í
bekknum. Ef það batnar ekki eru foreldrar boðaðir á fund þar sem t.d. bekkjarreglur eru lagðar fyrir foreldra, foreldrasamningur gerður og leitað leiða
um næstu skref.Fundur með foreldrum og börnum hvort sem árangur næst eða ekki. |